Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1980, Síða 34

Ægir - 01.02.1980, Síða 34
hjá 1960- og 1961-árgöngunum ef dæma má eftir hkl. veturinn 1964-65. Frá og með vetrinum 1967-68 óx hkl. og varð rúmlega 5 mm meiri veturna 1972-73 og 1976-77. Samhliða því að árgangar uxu hraðar, hrygndi hærra hlutfalli af 4ra ára rækju en áður. Vöxtur og mismunandi sterkir árgangar Ekki er unnt að aldursgreina rækju á beinan hátt með lestri árhringja eins og mögulegt er á skeljum og fiski. í stað þess er notuð óbein aðferð, svokölluð frávikaaðferð, sem Unnur Skúla- dóttir (1980) hefur aðlagað frá aðferð Sunds (1930). Aðferðin felst í því, að hlutfall stærðar- flokka, svokölluð lengdardreif- ing, er borin saman við meðal- lengdardreifingu nokkurra ára af sama svæði. Koma þá iðulega í ljós frávik hjá nokkrum lengdar- flokkum. Einungis er fylgt eftir jákvæðri frávikskúrfu, sem álitin er merkja árgang sterkari en i meðallagi miðað við aðra ár- ganga, er veiðast á sama svæði á sama tíma. Með því að fylgjast með frávikskúrfunni, er hún færð- ist upp um lengdarflokka með tímanum, er ráðið í vöxt sama árgangs frá ári til árs og um leið aldur. Sömu sterku árgangarnir koma ekki fram á öllum svæðum, sjá 1. mynd. Komi sami árgang- urinn fram sem frávik á tveim eða fleiri svæðum, virðist vöxturinn geta verið mishraður eftir svæð- um. Þannig eru hraðvaxta ár- gangarnir á Arnarfirði um 5 ár að ná 22 mm lengd meðan sömu ár- gangar ná þessari stærð á 4 árum í ísafjarðardjúpi. í innanverðum Húnaflóa virðist vöxturinn aftur á móti líkjast meira vextinum í Arnarfirði. Vöxtur Öxarfjarðar- rækjunnar virðist aftur á móti svipaður vexti rækjunnar í Djúpi. Af grunnslóðastofnum virðist hraðasti vöxturinn eiga sér stað við Eldey. Gögn af djúpslóð eru ekki mikil enn sem komið er, og er hér gerð fyrsta tilraun til ald- ursáætlunar á djúprækju. Það gerir einnig aldursáætlanir ó- áreiðanlegar miðað við rækju á grunnslóð, að miklu minni mis- munur virðist vera á árgangs- stærð hjá djúprækju. Dohrn- bankarækjan virðist vaxa hrað- ast af þekktum rækjustofnum hér við land. Vöxtur er síðan minni á djúpslóð fyrir norðan land og svipaður og hjá innfjarð- arækju. Hins vegarvirðist rækjan á Norðurkanti, við Kolbeinsey og á Sporðagrunni ná hærri aldri og meiri stærð en innfjarðarækjan yfirleitt. Grímseyjarrækjan verð- ur einnig nokkru stærri og eldri en t.d. Öxarfjarðarrækjan enda þótt frávik verði ekki rakin lengra en til 6 ára aldurs. Árgangastærð getur verið mis- munandi en þó aldrei neitt í lík- ingu við það sem gerist hjá mörg- um fiskum. Mestu sveiflur í ár- gangastærð hér við land eru að sjá hjá Arnarfjarðarrækjunni. Árgangarnir frá 1960 og 1961 voru einhverjir þeir sterkustu er komið hafa í Arnarfirði frá því athuganir hófust. Af svipuðum styrkleika er 1975-árgangurinn sem nú er mest áberandi í firðin- um. Athygli vekur hversu hægur vöxturinn er hjá þessum þremur árgöngum (1. mynd). ífyrstu var talið að þetta stafaði af meiri sjávarkulda en ella. Ekki reyndist þetta haldgóð skýring. Hitamæl- ingar á yfirborðshita á Hvallátr- um, sem Þórður á Látrum hefur framkvæmt vikulega allt frá því í september árið 1961 leiddu í ljós, að hiti var ívið í meira lagi árin 1962-66, þegar 1960- og 1961 ár- gangarnir voru að vaxa upp- Hins vegar var hitinn heldurfyrir neðan meðallag árin 1967-71 þegar hraðvaxta árgangarnir frá 1967 og 1969 voru að vaxa. Hita- stig við botn á Arnarfirði er auk þess fremur jafnt milli ára miðað t.d. við ísafjarðardjúp, sjá 2. og 3. mynd. Takið eftir hversu miklu kaldara er við botn í Arnarfirði en í Djúpi á svipuðu dýpi. Þetta stafar af því að Arnarfjörðurinn hefur þröskuld í mynni fjarðar- ins. Hitahámark við botn á 80-95 m dýpi næst auk þess seinna en í ísafjarðardjúpi, eða í miðjum nóvember í stað byrjun septem- ber í Djúpi. Sigurjón Hallgríms- son rækjuskipstjóri á ísafirði hef- ur gert flestar hitamælingar á ár- unum 1969-73 í Djúpi. Aðrar hitamælingar hefur Hafrann- sóknastofnunin gert. Skýringa á þessum mishraða vexti í Arnarfirði virðist að leita í öðru en hitamismun. Að sleppt- um hitamismun kunna tvö atriði 2. mynd. Sjávarhili i Arnarfirði. Meðal- hitaferill drsins (eftir mdnuðum, sjd róm- versku tölurnarj, árin 1969-79 við vftr- borð og botn. Gildi einstöku ára eru merkt sem x-1969, 0=1970 og 1=1971 o.s.frv. Yftrborðshiti er sd sami d öllunt svœðum á myndinni, þ.e. d 55-60 mdýpi1 Jjarðarkjafli, 80-90 m dýpi á móts við Stapadal og 90-95 m dýpi d móts við Hrafnseyri. 90 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.