Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1980, Side 38

Ægir - 01.02.1980, Side 38
rit á 8. mynd). Mismunandi stærð rækjulirfa innan einstakra svæða á sennilega að mestu leyti rætur að rekja til þess að klak stendur yfir í nokkurn tíma, jafn- vel hjá hverri hrygnu. Hver er svo tilgangur rækju- lirfuathugana kunna menn að spyrja? Þær spurningar sem mestu varða eru, hvort samband sé milli fjölda lirfa og fjölda rækja er þær fara að koma inn í veiðina. Ef svo er, væri hægt að segja fyrir um sterka eða veika árganga þeg- ar á fyrstu aldursmánuðum ár- gangsins. Strax skal tekið fram, að þau 4 ár, sem unnið hefur ver- ið úr gögnum, er áðurnefnt sam- band æði misjafnt, sjá 9. mynd. í þessu línuriti er borinn saman fjöldi rækjulirfa að vori við fjölda sama árgangs, þegar hann er ári eldri. En sá fjöldi hefur verið reiknaður út með svonefndri VP- greiningu eftir því hver hlutur hans hefur verið í veiði (um nokk- urra ára bil). Árin 1975, 1976 og 1978 hefur lirfufjöldinn tilhneig- ingu til að fylgja fjölda sem skilar sér í veiði. Árið 1977 er enga til- hneigingu að sjá í þá átt, en frá- vikið er i raun ekki meira en hin árin, svo að enn sem komið er verður vart sagt fyrir um raun- stærð árganga nema um mjög stóra eða litla árganga sé að ræða. Ástæðurnar fyrir þessu kunna að vera margar. Það er alkunna að í ríki hafsins er oft æði lítið sam- band milli foreldrafjölda (og þá fjölda hrogna eða lirfa) og af- komendafjölda (þ.e. þeirra er komast á legg). Frá því eggin klekjast út og þar til þau ná botni sem 15-17 mm langar lirfur um mitt sumar kunna blíð eða óblíð náttúruöfl að ráða miklu um end- anlegan fjölda er upp kemst. Það liggur beint við að gera því skóna, að mikið af lirfunum geti rekið burt með straumum meðan þær eru sviflægar. Eins og sést á 7. mynd er fjöldi lirfa oftast sára- lítill sem enginn er kemur út í utan- vert Isafjarðardjúp. Á þeim tíma, sem rækjulirfurnar eru sviflægar, hlýtur þó alltaf eitthvað að berast út úr Djúpinu og öðrum fjörðum, þótt meirihlutinn verði sennilega eftir. Á sniðinu milli Arnarfjarðar og ísafjarðardjúps hefursumárin orðið vart við kekki af rækjulirf- um þar sem fjöldinn hefur verið síst minni en inni á sjálfum rækju- Medoltolsfj eftir svœdutn JOKULF. 9,0 33% ÚTDJÚP. 3,0 11 % MIÐDJÚP 10,0 37 % INNDJÚP 5,0 19% ÍSAFJ.DJÚP 6,25 Arnarfj. 1,16 JOKULF. ÚTDJÚP MIÐDJÚP 3,4 INNDJÚP 0,7 ÍSAFJ.DJÚP |t25 Arnarfj. 0,33 Medoltolsfj. eftir svœdutn JOKULF. 7,0 35% ÚTDJÚP 3,0 15% MIÐDJÚP 80 40% INNDJÚP 2,0 10% ÍSAFJ.DJÚP4.59 Arnarfj. 1.01 Medoltolsfj. eftir svœdutn JOKULF. |,5 2 8% ÚTDJÚP 1,4 26% MIÐDJÚP 1,2 22% INNDJÚP |,3 24% ÍSAFJ.DJÚPl.27 Arnarfj. ? 7. mynd. Magn og úlbreiðsla rœkjulirfa i tsafjarðardjúpi fyrsw viku júni á árabilin11 1975-1978. Skipling Djúpsins ísvceði miðuð við línur dregnar um Æðev ogfrá BolunR' arvík-Bjarnarnúp-Slétlu. Inn selt á mvndina hliðslœður meðalfjöldi lirfa i Arnarfirð1 (Arnarfj.) árin 1975. 1976 og 1977. 94 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.