Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1980, Side 39

Ægir - 01.02.1980, Side 39
svæðunum. Hvaðan slíkar lirfu- torfur eru ættaðar verður ekki sagt með vissu. í ljósi þess að aldrei hefur fundist rækja í neinu magni úti fyrir fjörðunum verður að álykta, að lirfurnar hafi rekið ut úr Arnarfirði, en aðalstraum- urinn liggur í norður. Sú litla ðre>f, sem venjulega finnst úti fyr- !r er °g sennilega að mestu ættuð 'nnan úr fjörðum. Þó að gert sé ráð fyrir að þorri rækjulirfa í t.d. ísafjarðardjúpi °g Arnarfirði reki ekki burt — en slíkt hlýtur að vera forsenda þess að stóra rækjustofna er þar að finna yflr höfuð, sé hugmyndum Um göngu fullvaxinnar rækju afnað — fer því fjarri að allar mynd. Hlulfall mismunandi stórra r&kjulirfa i ísafjarðardjúpi. (D). Arnar- "■<3/ (A), 0g Breiðafirði (B) vorið 1978. hættur séu hjá liðnar fyrir lirfurn- ar. Þegar lirfusöfnun fer fram að vori, eru lirfurnar svo smáar og ósjálfbjarga, að kuldi, fæðu- skortur og óvinir kunna að verða þeim að fjörtjóni svo milljónum skiptir. Ekki er hins vegar hægt að bíða með að safna lirfunum þangað til þær eiga sér meiri lífs- líkur, þar sem þá fara þær að leita botns og söfnun verður miklu erf- iðari. Þegar á heildina er litið, kann því mörg ástæða að liggja til þess, að lítið samband finnst milli lirfu- fjölda og þeirra er endanlega komast á legg. í ofangreindrí umræðu eru og margar bollalegg- ingar þar sem verið er að reyna að ráða í eyður, sem ekki hefur tekist að fylla í af þeim upplýsingum, er fengist hafa úr fyrirliggjandi gögnum. Þessar bollaleggingar eru þó aðeins tilgátur, hér fram settar, svo lesendur fái gleggri mynd af því hve dæmin sem við er fengist geta haft margar hliðar. Að lokum skal bent á, að 4 ár eru stuttur tími fyrir slíkar athuganir og frekari reynsla kann að leiða margt skýrar í ljós. Fæða Margir sjómenn spyrja hvað rækjan éti. í sem stystu máli má svara því þannig, að rækjan sé hrææta sem lifir mest á rotnandi smáleifum dýra og plantna er rignt hefur niður á botninn eða kemur af dýrum sem þar eiga heima. Rækjan er ekki búin vel löguðum eða sterklegum munn- færum til þess að vinna á og að bráð eins og t.d. marflóin. Hér á landi hafa aðeins farið fram laus- legar athuganir á magainnihaldi rækjunnar, sem þó staðfesta það sem viðameiri athuganir erlendis hafa leitt í ljós. Athugun á maga- innihaldi norsku rækjunnar leiddi í ljós mikið af ógreinanlegum líf- rænum leifum. Þá fundust og smáleifar úr burstormum, sæ- bjúgum og svömpum, einstaka krabbaflær í heilu lagi, svo og leifar einfruma dýra og plantna svo sem götunga, skoruþörunga og ýmissa grænþörunga. Rækjan er að sönnu talin botndýr, þ.e. hún heldur sig mest við eða yfir botni og sækir þangað megnið af fæðu sinni, en hún leggur sér og til munns grænþörunga, sem hún eflaust sækir að töluverðu leyti upp í sjó. Lóðréttar göngur Allir rækjusjómenn kannast við það, að rækjan leitar eitthvað upp í sjó um nætur og er helst ekki veiðanleg við botn nema í dagsbirtu. Ekki er talið að rækjan sé í fæðuleit í þessum lóðréttu göngum, heldur er hér um eins- konar meðfædd viðbrögð við dvínandi birtu að ræða, en slíkar göngur upp og niður í sjónum eftir birtu eru þekktar hjá fjölda sund- lægra smádýra í hafinu, og nægir að nefna ljósátuna í því sambandi. Þegar birtu fer að bregða fer rækjan að leita frá botni upp í sjó. Talið er að hún haldi áfram að smágrynnka á sér þar til aldimmt er orðið eða hættir að dimma, en þá gengur gangan smám saman til baka án þess að til komi áhrif frá vaxandi birtu. Rækjan getur því verið komin niður undir botn að morgni, eða seinnipart nætur, áður en byrjað er að birta. Mis- munandi birtuskilyrði geta rugl- að áðurnefnd viðbrögð. Þetta fyrirbrigði er ekki eins áberandi hjá djúprækju þar sem mun dags og nætur gætir varla. Bjartar sumarnætur og sterkt tunglskin geta og haft mikil áhrif á þessar lóðréttu göngur. Þess má að lok- um geta til gamans að rækja hef- Framhald á bls. 117. ÆGIR — 95

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.