Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1980, Page 43

Ægir - 01.02.1980, Page 43
goða orðstýr sem íslenskur ferskfiskur hefur áunnið sér á þessum mörkuðum ætti að notfæra til hins ýtr- asta við að byggja upp freðfiskmarkaði í Evrópu, en dregist hefur úr hömlu að gera myndarlegt átak í þá att að byggja upp markaði fyrir íslenskan freðfisk á þess- um slóðum og er það nú að koma okkur í koll. Framboð á fiski vex jafnt og þétt á mörkuðum Norður-Ameríku og líklegt er að þessir markaðir verði óstöðugir og jafnvel óútreiknanlegir þegar Kanada- og Bandaríkjamenn hafa byggt upp sinn sjavarútveg og náð að nýta hin auðugu fiskimið sem þeir hafa yfir að ráða og er jafnvel talið að um offram- leiðslu á fiski verði að ræða þar um eða eftir miðjan þennan áratug. Eins og sakir standa er útlitið síður en svo bjart hjá þeim fiskframleiðendum sem mikið eiga undir þessum mörkuðum. • Báturinn sem ,, White Fish Authority" stofnunin notar við til- rQunaveiðar sínar með ,,Autoclip“ Hnuvélasamstœðuna. Stöðugt er unnið að endurbótum á hinum ýmsu muvélasamstæðum og hafa nýjar tegundir komið ram á sjónarsviðið að undanförnu, en þó margar Serðir hafi verið framleiddareru fáar ætlaðar bátum j minni stærðarflokkunum. Frá árinu 1975 hefur 'navélasamstæðan, sem hlotið hefur nafnið „Auto- C*‘P.“ verið í hönnun og þróun hjá „White Fish Authority“ stofnuninni í Hull, og er hún ætluð bát- UlT1 um og innan við 20 metra að lengd. Línuvéla- sarnstaeða þessi er búin vélbeitningu og sker beitning- arvélin jafnframt beituna. Hefur sá árangur náðst v'ö beitninguna að 93 af hverjum 100 krókum beit- asl eins og til er ætlast. Þegar línan er dregin eru aurr*arnir leystir sjálfvirkt af þininum með sérstök- um útbúnaði og raðast þeir á þar til gerðan stand, en við lagningu eru þeir klemmdir aftur á þininn og má stilla lagningsvélina eftir því hversu langt menn vilja hafa á milli króka og þykir af því mikil hagræðing. Er nafnið „Autoclip" af þessu dregið. Mælt er með að nota girnistauma, sem eru miklu stífari en venju- legir taumar og vefjast siður eða ekki upp á þininn þegar dregið er og hafa þeir einnig reynst vel þegar beitt er og lagt. Ef reiknað er með 4500 krókum á 8 mílna langa línu, þá er núverandi lagningshraði 4,5 mílur, en vonast er til að hægt verði að auka lagn- ingshraðann upp í 6 mílur áður en framleiðsla hefst fyrir almennan markað sem hugsanlega verður seinnihluta þessa árs. Gert er ráð fyrir íjögurra manna áhöfn á bátum sem búnir verða „Autoclip“ línuvélasamstæðunni. Verð er áætlað um £20.000, en öll uppsetning mun verða auðveld og tekur að- eins 2-3 daga að koma henni fyrir um borð. Þinurinn dregst inn í tromlu. Úthafsrækjuveiðar Norðmanna hafa síðan 1970 þróast upp í að verða mikilvæg atvinnugrein. Við úthafsrækjuveiðarnar eru í dag notuð stærri veiði- skip en áður þekktist og eru helstu miðin djúpt út af Norður-Noregi, við Bjarnareyjar, Svalbarða, Jan Mayen og Vestur-Grænland. Frá miðunum í Bar- entshafi og við Svalbarða er rækjan flutt hrá og ísuð til verksmiðja í landi, þar sem hún er skelflett og soðin. Á fjarlægari miðum er rækjan soðin og fryst um borð. Árið 1978 varð metaflaár, eða 31.689 tonn af úthafsrækju, en var 1977 um 25.000tonn. Minnk- að leyfilegt aflamagn við Vestur-Grænland var meir en bætt upp með aukinni veiði í Barentshafi.-B.H. ÆGIR — 99

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.