Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1980, Side 63

Ægir - 01.02.1980, Side 63
Vindubúnaður: Vindur skipsins, bæði þilfarsvindur og færavind- ui\ eru vökvaknúnar (háþrýstikerfi). Togvinda er frá Vélaverkstæði Sigurðar Sveinbjörnssonar h/f, knúin vökvaþrýstimótor frá Staffa af gerð B 080/P. Vindan er með tveimur togtromlum (160 mm0x 720 mm0x 390 mm), sem hvor rúmar um 675 faðma l‘/4“ vír, hífingatromlu og föstum koppi. Allar tromlurnar eru útkúplanlegar og með bremsubandi. Togátak vindu á miðja togtromlu (440 mm0) er 1.7 tonn og tilsvarandi dráttarhraði 104 m/mín. Aðrar þilfarsvindur, þ.e. línu- og netavinda, r°pavinda og bómuvinda, eru frá Sjóvélum í Kópa- v°gi. Línu- og netavinda er knúin af tveimur Ross vökvaþrýstimótorum, MAB-24 og MAE-34, tog- atak við 180 mm átaksþvermál er 0.8 tonn á línu- skífu og 1.5 tonn á netaskífu. Rópavinda hefur eina ^asta tromlu (165 mm0x 306 mm0x 210 mm) og er knúin af vökvaþrýstimótor frá Ross, gerð M AB-24, togátak á miðja tromlu (236 mm0) er0.6 tonn. Vind- an rétt aftan við þilfarshúsið, b.b.-megin. Bómu- vinda er knúin af vökvaþrýstimótor frá Danfoss, gerð OMR-315, togátak við 160 mm átaksþvermál er 0.6 tonn. í skipinu eru átta vökvaknúnar Elektra færavindur frá Elektratæki, Garðabæ. Rafeindatæki o.fl.: Ratsjá: Japan Radio Co., JMA-306, 40 sml. Áttaviti: Lilley & Gillid, borðáttaviti. Sjálfstýring: Scan Steering, Helmsman K-350. Loran: Micrologic, ML-220. Dýptarmælir: Japan Radio Co., NJA-320. Talstöð: Skanti TRP-2000, 200 W SSB. Örbylgjustöð: ITT Marine, STR-25. Af öðrum tækjabúnaði má nefna Bearcat 210 ör- bylgjuleitara og vörð frá Baldri Bjarnasyni. Af ör- yggis- og björgunarbúnaði má nefna 6 manna Dun- lop Seafarer gúmmíbjörgunarbát og neyðartalstöð frá Callbuoy. FISKVERÐ Botnfiskur Tilkynning nr. 1/1980. Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur akveðið eftirfarandi lágmarksverð á eftirgreindum fisktegundum frá 1. janúar til 31. maí 1980: Þorskur Á. Slægður fiskur með haus. Fyrsti flokkur: Fjöldi fiska í 100 kg 25 eða færri, pr. kg ..................... kr. 211.00 Frádráttur frá verði fyrir hvern fisk fram yfir 25 í 100 kg, pr. kg kr. 0.83 Annar flokkur: Verð pr. kg í öðrum gæðaflokki er 75% af verði 1. gæðaflokks. Þriðji flokkur: Verð pr. kg í þriðja gæðaflokki er 50% af verði 1. gæðaflokks. Óslægður fískur. Verð pr. kg af óslægðum fiski er ákveðið þannig, að reiknað er verð skv. A hér að framan þótt fiskurinn sé veginn óslægður og síðan skal greiða af því: a) Frá 1. janúar til 15. apríl 84.5%. b) Frá 16. apríl til 31. maí 81.5%. Ýsa A. Slægður fískur með haus. Fyrsti flokkur: Fjöldi fiska í 100 kg 50 eða færri, pr. kg ...................... kr. 209.00 Frádráttur frá verði fyrir hvern fisk fram yfir 50 í 100 kg, pr. kg kr. 1.16 Annar fíokkur: Verð pr. kg í öðrum gæðaflokki er 75% af verði 1. gæðaflokks. Þriðji flokkur: Verð pr. kg í þriðja gæðaflokki er 50% af verði 1. gæðaflokks. B. Óslægður fískur: Verð pr. kg af óslægðum fiski er ákveðið þannig, að reiknað er verð skv. A hér að framan þótt fiskurinn sé veginn óslægður og síðan skal greiða af því 73.5%. ÆGIR — 119

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.