Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1980, Side 72

Ægir - 01.02.1980, Side 72
Aðalvél af nýrri Caterpillargerð í m/b Gunnari Bjarnasyni SH-25, Ólafsvík Á síðastliðnu hausti kom m/b Gunnar Bjarnason SH-25 til heimahafnar eftir aðalvélaskipti í Þýska- landi. Gunnar Bjarnason er stálskip smíðað í Noregi árið 1963, aðalmál skipsins eru lengd 34.12 m, breidd 7.01 m og dýpt 3.38 m. í skipinu var áður Lister 660 ha aðalvél ásamt Liaen skiptiskrúfubúnaði, svo og jafnstraumur, en jafnframt aðalvélaskiptum var einnig breytt yfir í 380/220 volta 50 Hz rið- straum. Nýja aðalvélin er Caterpillar gerð D-399, sett á 1000 hö við 1125 sn/mín. Vélin er úr seríu sem Caterpillar kallar 6.25 sería, og er stærsta vél sem þeir framleiða (hámarksafköst 1125 hö við 1225 sn/mín). Þessi vélasería er skipstjórnarmönnum ekki ókunn, t.d. D-398, 850 hö, D-379, 565 hö og D353,425 hö, en vélin sem sett var í Gunnar er fyrsta D-399 vélin sem Hekla h/f. afgreiðir sem aðalvél í skip hér á landi. D-399 vélin er 16 strokka V-byggð, fjórgengis dieselvél. Vélin er með afgablásurum og eftirkæli, snúningshraðinn er eins og áður sagði 1225 sn/mín, hún er kæld með tveimur utanborðskælum af FERNSTRUM gerð, en þessi kæling verður sífellt vinsælli hérlendis. Vél og gír er algjörlega stjórnað úr brú með loftstýringu. Aftan við vélina er gírbúnaður af Ulstein 220 gerð (hámarksafköst 1600 hö), niðurfærsla er 4.53:1 og gefur því skrúfuhraða 270 sn/mín. Gír þessi er ekki sambyggður á vél, heldur fristandandi, sem hefur augljósa kosti þegar þjóna þarf baeði vél og gír. Skrúfan er einnig frá Ulstein AS í Noregi, er hún fjögra-blaða með 1950 mm þvermáli. Fyrir framan aðalvél er dælugír af NORGEAR FG 570 gerð, við hann eru tengdar tvær lágþrýstidælur hvor um sig 65 hö við 1375 sn/mín. og tvær há- þrýstidælur 60 hö við 1375 sn/ mín. Einnig er mögu- leiki á að tengja við gírinn hliðarskrúfudælu 250 hö á 1760 sn/mín. Eins og áður sagði var einnig breytt um straunr í skipinu, sett var ein ný Caterpillar 3304 dieselvél 75 hö við 1500 sn/mín, við hana er Stamfard rafali 50 kw 50 Hz, einnig var settur samskonar rafah við gamla hjálparvél sem fyrir var í skipinu, raf- stöðvarnar eru búnar til samfösunar. Við vélarskiptin voru skipstjóri og vélstjóri við- staddir allan tímann, telja þeir að vinna Þjóðverj- anna hafi verið öll til fyrirmyndar. Hekla h/f hannað breytingar á vélarundirstöðum og reyndust þær auðveldar þegar haft er í huga að breytt var um vélarlengd og hestöfl aukin úr 660 i 1000. Síðan m/b Gunnar Bjarnason kom heim hefur skipið verið að stanslausum veiðum, og hefur vél og búnaður reynst hinn besti í alla staði. 128 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.