Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1983, Qupperneq 19

Ægir - 01.11.1983, Qupperneq 19
íslenska laxastofna, og þá væntanlega einkum suð- vestanlands. Að mati stangveiðimanna hafa þessir stofnar orðið sífellt smávaxnari síðustu áratugina. Um þetta atriði eru án efa í fórum Veiðimálastofnun- arinnar nokkur gögn, en stofnunin hefur mér vitan- lega ekki birt neina úrvinnslu á þessu sviði. Laxagengd til laxalandanna við norðanvert At- lantshaf, bæði í Kanada og í Evrópulöndunum, hefur „aðlagast“ Grænlandsveiðunum tvo síðustu áratug- ina án þess að bíða afhroð. Þó er auðsætt, að saman- lagðar veiðar þessara landa hefðu orðið meiri á þessu tímabili sem nemur nokkurn veginn þeim framreikn- uðu aflatölum Grænlendinga sem lesa má af töflu 2, niargfölduðum með meðalveiðiálagi landanna. Hefð Grænlendinga varðandi úthafsveiðarnar er þegar slík, að sennilega mætti skilgreina það sem „economic dislocation“ (í þýðingu prófessor Gunnars G. Schram: „efnahagslegt áfall“), væru veiðarnar stöðvaðar bótalaust. Samkvæmt 66. gr. Hafréttar- sáttmálans, 2. málsgr., gætu laxalöndin sameiginlega stöðvað þessar veiðar utan 12 mílna strandlínu Græn- lands, en myndi þó skylt í þessu sambandi að taka til- lit til þess, hvort slíka stöðvun mætti túlka sem „eco- nomic dislocation“ fyrir landið. Fyrir Færeyjaveiðun- um er hins vegar engin söguleg hefð, svo sem drepið verður á síðar. Samkvæmt Reykjavíkursamningnum, sem undir- ritaður var sumarið 1982, gilda um laxveiðar bann- ákvæði utan 12 mílna strandlínu fyrir öll laxalöndin við norðanvert Atlantshaf, en undanskilin eru tvö lönd sem framleiða engan lax, nefnilega Færeyjar og Grænland (Færeyjar framleiða að vísu hungurlús, er gæti numið örfáum hundruðum laxa á ári). Skv. þessum samningi hafa Grænlendingar leyfi til lax- veiða allt að 40 sjómílum frá strandlínu, en Færey- ingar innan 200 mílna fiskveiðilögsögu eyjanna. Reykjavíkursamningurinn getur að sjálfsögðu ekki brotið í bága við Hafréttarsáttmálann, en í hinum síðar nefnda er tekið tillit til veiðiréttar þeirra landa, er verða myndu fyrir efnahagslegu áfalli (economic dislocation), væru hefðbundnar veiðar þeirra stöðv- aðar. Dr. Gunnar G. Schram, þjóðréttarfræðingur og prófessor, og Eyjólfur K. Jónsson, lögfræðingur og alþingismaður, hafa með greinum í Morgunblaðinu sýnt fram á, að skv. 66. grein Hafréttarsáttmálans gætu laxalöndin við norðanvert Atlantshaf (uppruna- lönd laxins) sameiginlega takmarkað eða stöðvað tneð öllu úthafsveiðar Færeyinga og Grænlendinga. Vil ég í þessu sambandi sérstaklega vísa til greinar prófessors Gunnars, er birtist í Morgunblaðinu 17. júlí 1982. Þessir sérfræðingar eru hnútunum kunnug- ir, með því þeir sátu í fastanefnd íslands á fjöl- mörgum Hafréttarráðstefnum, en þar munu Islend- ingarnir hafa átt drjúgan þátt í samningu 66. greinar- innar. Tilvísanir til hennar í þessari greinargerð grundvallast á túlkun þeirra Gunnars og Eyjólfs um lagagildi greinarinnar. b) Færeyjaveiðarnar. Það brá svo við, strax og þessar veiðar hófust í verulegum mæli á vertíðinni 1979-1980 (þá veiddust 718 tonn), að heildarlaxveiði á Bretlandseyjum og ís- landi hrapaði um 40-50%, en á Norðausturlandi varð rýrnunin rúmlega 85% (16). Skv. töflu 2, og að sögn Færeyinga, drógu þeir talsvert úr veiðinni á vertíð- unum 1981-82 og 1982-83. Af fréttum sem dagblöðin hafa flutt má ætla, að á Suðvesturlandi hafi laxveiðin 1983 verið nokkru betri en 1982. Á Austur- og Norð- austurlandi virðist um að ræða ámóta ördeyðu og sumrin 1981 og 1982, og má búast við að laxveiði þurrkist þar út, að óbreyttum Færeyjaveiðum. En það sem einkum vekur athygli er, að áhrif Færeyja- veiðanna virðast færast í aukana fyrir Norðurlandi. Þannig brást drottning íslenskra veiðivatna, Laxá í Aðaldal, hrapallega sumarið 1983 og talsvert verr en 1982, en þá var hún ekki hálfdrættingur á við það sem venjulegt er. Fáir laxar hafa veiðst í ánni og flestir smáir. Og svo lítur út sem gjöfulasta laxveiðisvæði Norðurlands, Húnavatnssýslur, gefi nokkru færri laxa en sumarið 1982, sem var mjög lélegt. Þá er það ills viti, að af 20.000 óvenju stórvöxnum og vel undir- búnum sjógönguseiðum sem sleppt var í stöðuvatnið Lón í Kelduhverfi 1981, hafa endurheimtur af vænum laxi sumarið 1983 verið með ólíkindum rýrar, sé miðað við fyrstu tilraunasleppingu á þessum stað 1978. Af 600 sjógönguseiöum sem þá var sleppt í Lón veiddust alls 35 laxar í silunganet sumrin 1979 og 1980, eða alls 5.8%. En fullvíst má telja, að fleiri laxar frá þessari sleppingu hafi gengið í Lónið, því að gildru hafði þá ekki verið komið fyrir þar (21). Spyrja má, hvernig á því standi, að áhrifa Færeyja- veiðanna á laxagengd til Evrópulanda sýnast miklu meiri en áhrif Grænlandsveiðanna, þó að þær síðar- töldu hirði nú, skv. uppgefnum aflatölum, talsvert meira af laxi. Hér virðist mér, að einkum tvennt geti komið til: í fyrsta lagi hefur, eins og fyrr var nefnt, laxagengd til heimalandanna aðlagast eða komist í eins konar jafnvægi við Grænlandsveiðarnar, sem hafa haldist nær óbreyttar síðustu 7 árin. En óhjá- ÆGIR-579
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.