Ægir - 01.11.1983, Blaðsíða 46
Keila:
í keilu er mikill hringormur en hún hefur lítið verið
fryst, þannig að fjöldi orma í henni er óljós.
Lúða:
I lúðu fer hringormur vaxandi og í prufum frá þessu
ári kemur í ljós að í henni eru tæplega tveir ormar í
kg. af flaki.
Karfi:
I karfa hefur undanfarið orðið vart við hringorma
en ekki það mikið að það þyki ástæða til að skrá fjölda
þeirra.
Ýsa:
Flestir halda sjálfsagt að í ýsu sé enginn hring-
ormur, en því miður er það ekki svo. Undanfarnar
vertíðir hefur orðið vart við hringorma í ýsu en ekki
það mikið að ástæða hafi þótt til að telja þá.
Þessi greinargerð segir frá því í grófum dráttum,
hvernig aukning á hringormi hefur verið í fiski sem er
veiddur á fengsælustu fiskimiðum hér við land.
Við lestur þessarar greinar sést að botnfiskar eru
sjúkir af hringormi. Hér hefur aðeins verið getið þess
orms sem finnst í holdi fisksins en þar að auki er mikill
hringormur í lifrinni. Er full ástæða til þess að athuga
nánar hvort þetta er ekki ein ástæðan fyrir hægari
vexti fiska því þessi sjúkdómur hlýtur að draga eitt-
hvað úr þroska þeirra fiska sem fá í sig mikinn orm
strax á fyrstu árum æviskeiðsins.
Ef litið er til framtíðar fiskveiða og fiskvinnslu á
öllum tegundum botnfisks, þá verður að taka á þessu
máli af fullri alvöru, því hvers virði verður þessi mikla
auðlind þjóðarinnar í framtíðinni ef hún reynist svo
sýkt af hringormum að ekki verður mögulegt að fram-
leiða gallalausa vöru úr íslenskum botnfiski og
vinnulaunakostnaður við að tína hringorma úr fiski
verður kominn langt upp fyrir það sem fiskvinnslan
þolir.
FISKVERÐ
Síld til bræðslu
Nr. 18/1983
Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi
lágmarksverð á síld og síldarúrgangi til bræðslu frá byrjun
síldarvertíðar haustið 1983 til 31. janúar 1984:
kr.
a) Þegar selt er frá fiskvinnslustöðvum til fiski-
mjölsverksmiðja:
Síld, hvert tonn ............................ 1.390.00
Síldarúrgangur, er reiknast 25 kg á hverja
uppsaltaða tunnu af hausskorinni og slóg-
dreginni síld, hvert tonn ..................... 900.00
b) Þegar síld undir 25 cm er seld til fiskvinnslu-
stöðva eða síld er seld beint frá fiskiskipi til
fiskimjölsverksmiðja, hvert tonn ............ 1.000.00
Verðið er miðað við síldina og síldarúrgang-
inn kominn í verksmiðjuþró.
Fiskbein og fískslóg
Ennfremur hefur Verðlagsráð sjávarútvegsins ákveðið eftir-
farandi lágmarksverð á fiskbeinum, fiskslógi og heilum fiski
til mjölvinnslu svo og á lifur frá 1. október 1983 til 31. janúar
1983:
a) Þegar selt er frá fiskvinnslustöðvum til fiski-
mjölsverksmiðja: kr.
Fiskbein og heill fiskur, sem ekki er sérstak-
lega verðlagur, hvert tonn .................... 460.00
Karfa- og grálúðubein og heill karfi og grá-
lúða, hvert tonn .............................. 715.00
Steinbítsbein og heill steinbítur, hvert tonn . 300.00
Fiskslóg, hvert tonn .......................... 200.00
b) Þegar heill fiskur er seldur beint frá skipum til
fiskimj ölsverksmiðj a:
Fiskur, sem ekki er sérstaklega verðlagður,
hvert tonn .................................... 330.90
Karfi og grálúða, hvert tonn .................. 514.40
Steinbítur, hvert tonn ........................ 215.80
Verðið er miðað við, að seljendur skili framangreindu
hráefni í verksmiðjuþró. Karfa- og grálúðubeinum skal
haldið aðskildum.
Lifur
bræðsluhæf, seld frá veiðiskipi til lifrarbræðslu: kr.
1) Lifur, sem landað er á höfnum frá Akranesi
austur um til Hornafjarðar, hvert tonn .... 2.300.00
2) Lifur, sem landað er á öðrum höfnum,
hverttonn .............................. 1.800.00
Verðið er miðað við lifrina komna á flutnignstæki við hlið
veiðiskips.
Reykjavík 7. október 1983.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
606-ÆGIR