Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1983, Page 61

Ægir - 01.11.1983, Page 61
SKIPSTAPAR OG SLYSFARIR Bakkavík ÁR100 fórst - tveir bræður týndu lífi Þann 7. september s.l. um kl. 1315, fékk vélbát- urinn „Bakkavík" ÁR-100 á sig brotsjó rétt utan við sundið sem markar innsiglinguna til Eyrarbakka. Reis brotið upp hjá skerinu Brynka og fór báturinn fyrst á hliðina, en þegar annar brotsjór fylgdi rétt á eftir, fór hann á hvolf og var sokkinn innan 15 mín- útna, eða þ.u.b. Á „Bakkavíkinni" voru þrír bræður. Þegar bátnum hvolfdi, komust þeir allir um borð í gúmmíbjörgunarbát. Tókst þeim bræðrum að skjóta ú loft neyðarblysum frá björgunarbátnum sem velkt- >st til í brimgarðinum, vestur með landinu. Ekki leið þó á löngu þar til brotsjór reið yfir björgunarbátinn og skolaði þá tveimur þeirra bræðra fyrir borð og sáust þeir ekki meir. Þeim þeirra, sem eftir var, tókst að hanga á bátnum þar til honum var bjargað, en þá hafði liðið um klukkustund frá því að slysið varð. Sjónarvottar voru að sjálfu slysinu úr landi, en aðstæður allar hinar erfiðustu og því tók þann tíma er að ofan greinir að bjarga þeim er af komst. Maðurinn sem bjargaðist heitir Vigfús Markússon, og þykir hann hafa sýnt mikla hreysti í þessum mann- raunum. Stöðugt braut yfir gúmmíbjörgunarbátinn meðan á hrakningunum stóð, en þakið á honum hafði að mestu rifnað af við brotið sem hreif bræður hans með sér. Þeir sem fórust með „Bakkavík“ voru: Þórður Markússon, skipstjóri, fæddur 29. nóv. 1953. Sigfús Markússon, vélstjóri, fæddur 2. ágúst 1958, báðir til heimilis að Ásgarði, Eyrarbakka. „Bakkavík" ÁR-100 var byggður í Neskaupstað 1971 og var trébátur. Eigandi var Þórður heitinn Markússon, skipstjóri. í gegnum tíðina hafa sjóslys verið tiltölulega tíð á þeim slóðum sem „Bakkavík“ fórst. Menn mundu því ætla, að það hljóti að vera betri lausn að hefja byggingu á brú yfir Ölfusárósa, en fórna fleiri manns- lífum í stórhættulegum innsiglingum, morandi í skerjum, þar sem sjó brýtur ef eitthvað er að veðri, og liggja að hafnleysum þeim fyrir opnu hafi sem notast er yið á Eyrarbakka og Stokkseyri. Brúarsmíðar hafa verið framkvæmdar af minna tilefni og gagni áður á íslandi. Eitthvað hlýtur einnig að sparast á móti við að leggja niður hafnarmannvirkin sem þarna eru og sækja í staðinn sjó frá Þorlákshöfn. B.H. ÆGIR-621

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.