Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1991, Blaðsíða 18

Ægir - 01.02.1991, Blaðsíða 18
70 ÆGIR 2/91 að stuðla að aukinni hafnargerð og bættu öryggi sjómanna, en þó aðallega á sviði skipulagningar með eflingu samtaka og félaga hinna ýmsu greina sjávarútvegs- ins. Árið 1914 hóf svo Fiskifélagið söfnun upplýsinga um afla og frá upphafi sá það um útgáfu Ægis til að miðla upplýsingum um sjávar- útveg til þeirra sem á þurftu að halda eða áhuga höfðu. Að öðrum þræði var stofnun Fiskifélagsins til að uppfylla skarð í atvinnugrein- inni sem að öðru jöfnu hefur verið talin á vettvangi ríkisins, en ríkið hafði á þessum tíma ekki burði til að veita útvegnum þá þjónustu sem hann þarfnaðist. Starfsemi Fiskifélagsins þróaðist fljótlega á þann veg að félagið varð eðlilegur milliliður milli atvinnugreinar- innar og Alþingis. Alla tíð síðan hefur Fiskifélagið verið í þeirri aðstöðu að þjóna Alþingi, en jafn- framt verið undir stjórn aðila í sjávarútvegi. Löggjafarvaldið og sjávarútvegurinn Hver hefur svo verið árangur af þessu samstarfi löggjafarvaldsins og sjávarútvegsins í gegnum Fiski- félagið? Raunverulegan árangur af þessu samstarfi er enginn mögu- leiki að meta. Augljósasti árangur af starfseminni er að sjálfsögðu stofnanir sjávarútvegsins og félög sem lagður var grunnur að innan Fiskifélagsins. Nægir þar að nefna Slysavarnafélag íslands, Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins og Hafrannsóknastofnun. Sá árangur sem ekki verður beinlínis mældur er miklu meiri, en verður aldrei rakin beint til Fiskifélagsins, heldur til samvinnu ótal félaga- samtaka og einstaklinga. íslend- ingar hafa þann árangur daglega fyrir augunum. Öflugustu atvinnu- grein íslensku þjóðarinnar, sjávar- útveginn. I upphafi aldarinnar dvergur á brauðfótum, nú undir lok aldarinnar, meginþáttur íslenska hagkerfisins, uppistaða og vaxtarbroddur. Öðrum þjóðum hefurekki tekist svo vel til með sinn sjávarútveg. Er hugsanlegt að á einhvern hátt sé hægt að rekja þennan árangur til samvinnu Alþingis og sjávarút- vegsins í gegnum Fiskifélagið og þá sérstaklega æðstu stofnun félagsins, Fiskiþings? Er sá mögu- leiki fyrir hendi að nauðsyn sam- komulags ólíkra hagsmuna á Fiski- þingi hafi leitt til þess árangurs sem við höfum óneitanlega náð og komið um leið í veg fyrir valda- streitu milli hins opinbera og atvinnugreinarinnar eða hins opinbera og einstakra þátta sjávar- útvegsins? Þessum spurningum er ekki auðsvarað, en líklegustu svörin ættu að vera umhugsunar- efni fyrir marga sem hafa tjáð sig um skyld mál á undanförnum árum. Hitt ætti að vera öllum Ijóst að þau áhrif sem Fiskiþing og stjórn Fiskifélagsins hafa haft á lagasetn- ingu og gerð almennra reglna um starfsemi sjávarútvegsins hafa gert mönnum kleift að byggja upp öflugan atvinnuveg án stærri mis- taka eða átaka við starfsmenn í greininni. Áður var nefnt, að árið 1914 hóf Fiskifélagið söfnun afla- talna, síðar, eða 1925, setti Alþingi lög og fól þar með Fiskifé- laginu söfnun þessara upplýsinga og setti ákveðnar reglur þar um. Árið 1941 voru sett ný og ítarlegri lög um söfnun aflatalna og Fiski- félaginu falin frekari söfnun gagna um sjávarútveg og úrvinnslu þeirra. Þessi gagnasöfnun var upp- byggð í náinni samvinnu við sjó- menn og útgerðarmenn að ógleymdum þeim sem að vinnsl- unni stóðu. Við þvílíka söfnun upplýsinga verður ætíð að gæta að hinu mjóa bili milli þess sem má kalla eðlilega upplýsingasöfnun og þess að vera með nefið niðri Mynd 2. Mjór en mikits vísir. Skrifstofa fiskifræöings Fiskifélags Islands. Árni Friðriksson fiskifræðingur að störfum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.