Ægir - 01.02.1991, Blaðsíða 52
104
ÆGIR
2/91
NÝ
FISKISKIP
Þinganes SF 25
Nýtt tveggja þilfara alhliða fiskiskip bættist við flota
Hornfirðinga 7. febrúar s.l., en þann dag kom Þinga-
nes SF 25 til helmahafnar sinnar, Hornafjarðar.
Skipið sem er hannað af Ráðgarði hf. er smíðað hjá
skipasmíðastöðinni CARNAVE-Estaleiros Navais
S.A., Aveiro í Portúgal, smíðanúmer 134, og er
annað í röð fjögurra skipa sem smíðuð eru þar fyrir
Islandinga en s. I. sumar kom fyrsta skipið, Haukafell
SF (sjá 9. tbl. Ægis 1990). Áður hafa tvö fiskiskip
verið smíðuð fyrir Islendinga í Portúgal, en það eru
skuttogararnir Jón Baldvinsson RE 208 og Már SH
127, afhentir árið 1980.
Hið nýja Þinganes kemur í stað Þinganess SF 25
(sk. skr. nr. 566), 74ra rúmlesta eikarbáts sem smíð-
aður var í V-Þýskalandi árið 1960, og hefur verið
úreltur. Skipið er búið til tog-, nóta- og netaveiða.
Helstu breytingar á skipinu frá Haukafelli eru breytt
lögun framstefnis, aðalvél frá öðrum framleiðanda og
átaksmeiri togvindur.
Þinganes SF er í eigu samnefnds hlutafélags á
Höfn, Hornafirði. Skipstjóri á skipinu er Gunnar
Ásgeirsson og yfirvélstjóri er Reynir Arnarson. Fram-
kvæmdastjóri útgerðar er Gunnar Ásgeirsson.
Mesta lengd 25.96 m
Lengd milli lóðlína (HVL) 23.40 m
Lengd milli lóðlína (perukverk) 22.35 m
Breidd (mótuð) 7.90 m
Dýpt að efra þilfari 6.20 m
Dýpt að neðra þilfari 3.80 m
Eiginþyngd 405 t
Særými (djúprista 3.80m) 514 t
Burðargeta (djúprista 3.80m) 109 t
Lestarrými ............................. 125 m3
Brennsluolíugeymar 50.4 m3
Ferskvatnsgeymar 15.0 nr
Sjókjölfestugeymir 8.2 m3
Brúttótonnatala 262 BT
Rúmlestatala ........................... 162 Brl
Ganghraði (reynslusigling) 10.7 hn
Skipaskrárnúmer ....................... 2040
Almenn lýsing:
Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki »1« 1A1, Stern
Trawler, lce C,4* MV. Skipið er með tvö þilför stafna
á milli, perustefni, gafllaga skut, skutrennu upp á efra
þilfar og brú á reisn framan við miðju á efra þilfari.
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með sex þver-
skipsþilum (fjögur vatnsþétt) í eftirtalin rúm, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu; hliðarskrúfu-
rými og keðjukassar; íbúðarými með ferskvatnsgeymi
í botni; fiskilest með brennsluolíugeymum í botni;
vélarúm með hljóðeinangruðum vélgæsluklefa fremst
b.b.-megin og brennsluolíugeymum í síðum; dag- og
smurolíugeymar og aftast eru brennsluolíugeymar.
Fremst á neðra þilfari er geymsla, þar fyrir aftan eru
íbúðir og síðan vinnuþilfar. Aftan við vinnuþilfar eru
fiskmóttaka fyrir miðju, verkstæði b.b.-megin og
stigagangur s.b.-megin, en aftast er rými fyrir tog-
vindur úti í síðum og stýrisvélarrými fyrir miðju.
Brú skipsins er framan við miðju, og hvílir á um
1.5 m hárri reisn. Vörpurenna kemur í framhaldi af
skutrennu, hún greinist í tvær rennur, sem liggja í
gegnum brúarreisn og ná fram undir stefni og er unnt
að hafa tvær vörpur undirslegnar og tilbúnar til veiða.
Nótakassi er s.b.-megin við vörpurennu. Snurpigálgi
er s.b.-megin framan við brú, og yfir afturbrún skut-
rennu er toggálgi, en pokamastur yfir frambrún skut-
Þinganes SF er fjölveiðiskip og er m.a. búið kraftblökk til
síldveiða. Ljósmyndir með grein: Tæknideild /JS.