Ægir - 01.02.1991, Blaðsíða 55
2/91
ÆGIR
107
almennra nota í íbúðum. Rafalar eru tveir og eru þeir
búnir skammtíma samfösunarbúnaði. Rafal á aðalvél
er annars vegar unnt að keyra á föstum snúnings-
hfaða vélar beint inn á rafkerfið, eða hins vegar í
Segnum thyristora til afriðunar og omformara frá
Leroy Somer, en þá má keyra aðalvél á breytilegum
snúningshraða, frá 600 til 850 sn/mín, og er stjórn-
búnaðurinn frá Rafboða hf. Landtenging er í skipinu,
42 KVA með 60 m kapli.
Fyrir vélarúm er Halon 1301 slökkvikerfi.
Ibúðir eru hitaðar upp með miðstöðvarkerfi, sem
taer varma frá kælivatni véla, og til viðbótar er 18 KW
mfhitari frá Rafha af gerð HTRS 18. Neysluvatn er
hitað á sama hátt. Fyrir loftræstingu íbúða er einn
rafdrifinn blásari, afköst 1500 m3/klst, og er hita-
element frá miðstöðvarkerfi í loftrás. Sogblásarar eru
tve'r' hOO m3/klst hvor, annar fyrir eldhús og stiga-
hús, en hinn fyrir salerni og stakkageymslu. Vatns-
Þrýstikerfi eru tvö, annað fyrir sjó en hitt fyrir
erskvatn, með um 60 I þrýstikútum.
Fyrir vökvaknúinn vindubúnað og hliðarskrúfu eru
tv*r áðurnefndar tvöfaldar háþrýstidælur, drifnar frá
mlúttökum á niðurfærslugír. Fyrir átaksjöfnunar-
únað togvinda, og til vara fyrir vindubúnað, er 45
W rafknúin dælusamstæða, Rexroth IPF 2G. Fyrir
v°kvaknúinn krana er 22 KW rafdrifin Rexroth
vökvaþrýstidæla. Rafkn úin dælusamstæða er fyrir
ugnr, færibönd o.þ.h. Stýrisvél er búin tveimur raf-
knúnum dælum.
Fyrir lestarkælingu eru tvær kæliþjöppur frá Bock,
gerð F4, kælimiðill Freon 22. Fyrir matvælageymslu
er sjálfstætt kælikerfi frá Danfoss.
íbúðir:
íbúðir eru samtals fyrir 11 menn í fjórum tveggja
manna klefum og þremur eins manns klefum.
í íbúðarými undír neðra þilfari eru fjórir tveggja
manna klefar.
í íbúðarými á neðra þilfari er skipstjóraíbúð (setu-
stofa og svefnklefi), b.b.-megin fremst, en þar fyrir
aftan er matvælageymsla, þá eldhús og borðsalur
aftast. S.b.-megin fremst er klefi yfirvélstjóra, en aftan
við hann er stakkageymsla, salernis- bað- og þvotta-
klefar. Á milli klefa vélstjóra og skipstjóra er einn eins
manns klefi.
íbúðir eru einangraðar með 100 mm glerull og
klæddar með plasthúðuðum eldþolnum plötum.
Vinnuþilfar:
Fiskmóttaka, um 15 m3 að stærð, er aftast á vinnu-
þilfari og er fiski hleypt í hana um vökvaknúna fiski-
ílúgu á efra þilfari, framan við skutrennu. í efri brún
skutrennu er vökvaknúin skutrennuloka, sem opnast
lóðrétt niður. Fiskmóttöku er lokað vatnsþétt að
framan með stálþili, og á því eru tvær lúgur með
vökvaknúnum lokunarbúnaði.
Á vinnuþilfari er aðgerðarbúnaður frá Klaka hf.,
þ.e. vökvaknúin færibönd, aðgerðarborð, þvotta- og
safnker (þrískipt) og búnaður til flutnings á slógi.
Á milliþilfari er unnt að setja uppstillingu, sem
rúmar 50 tonn af síld.
Á s.b.-síðu eru tvær lúgur, lagnings- og dráttarlúg-
ur, og þá er einnig lagningslúga í efra þilfari við b.b.-
síðu, aftan við íbúðir. Síðulúgur eru með vökva-
drifnum lokunarbúnaði.
Klaki sf.
Hafnarbraut 25 • Kópavogi • Sími 91-44225 • Fax 9144167
Óskum útgerð og
skipshöfn til hamingju
Ftieð Þinganesið.
Um borð er
fiskvinnslubúnaður
frá okkur.