Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1991, Page 55

Ægir - 01.02.1991, Page 55
2/91 ÆGIR 107 almennra nota í íbúðum. Rafalar eru tveir og eru þeir búnir skammtíma samfösunarbúnaði. Rafal á aðalvél er annars vegar unnt að keyra á föstum snúnings- hfaða vélar beint inn á rafkerfið, eða hins vegar í Segnum thyristora til afriðunar og omformara frá Leroy Somer, en þá má keyra aðalvél á breytilegum snúningshraða, frá 600 til 850 sn/mín, og er stjórn- búnaðurinn frá Rafboða hf. Landtenging er í skipinu, 42 KVA með 60 m kapli. Fyrir vélarúm er Halon 1301 slökkvikerfi. Ibúðir eru hitaðar upp með miðstöðvarkerfi, sem taer varma frá kælivatni véla, og til viðbótar er 18 KW mfhitari frá Rafha af gerð HTRS 18. Neysluvatn er hitað á sama hátt. Fyrir loftræstingu íbúða er einn rafdrifinn blásari, afköst 1500 m3/klst, og er hita- element frá miðstöðvarkerfi í loftrás. Sogblásarar eru tve'r' hOO m3/klst hvor, annar fyrir eldhús og stiga- hús, en hinn fyrir salerni og stakkageymslu. Vatns- Þrýstikerfi eru tvö, annað fyrir sjó en hitt fyrir erskvatn, með um 60 I þrýstikútum. Fyrir vökvaknúinn vindubúnað og hliðarskrúfu eru tv*r áðurnefndar tvöfaldar háþrýstidælur, drifnar frá mlúttökum á niðurfærslugír. Fyrir átaksjöfnunar- únað togvinda, og til vara fyrir vindubúnað, er 45 W rafknúin dælusamstæða, Rexroth IPF 2G. Fyrir v°kvaknúinn krana er 22 KW rafdrifin Rexroth vökvaþrýstidæla. Rafkn úin dælusamstæða er fyrir ugnr, færibönd o.þ.h. Stýrisvél er búin tveimur raf- knúnum dælum. Fyrir lestarkælingu eru tvær kæliþjöppur frá Bock, gerð F4, kælimiðill Freon 22. Fyrir matvælageymslu er sjálfstætt kælikerfi frá Danfoss. íbúðir: íbúðir eru samtals fyrir 11 menn í fjórum tveggja manna klefum og þremur eins manns klefum. í íbúðarými undír neðra þilfari eru fjórir tveggja manna klefar. í íbúðarými á neðra þilfari er skipstjóraíbúð (setu- stofa og svefnklefi), b.b.-megin fremst, en þar fyrir aftan er matvælageymsla, þá eldhús og borðsalur aftast. S.b.-megin fremst er klefi yfirvélstjóra, en aftan við hann er stakkageymsla, salernis- bað- og þvotta- klefar. Á milli klefa vélstjóra og skipstjóra er einn eins manns klefi. íbúðir eru einangraðar með 100 mm glerull og klæddar með plasthúðuðum eldþolnum plötum. Vinnuþilfar: Fiskmóttaka, um 15 m3 að stærð, er aftast á vinnu- þilfari og er fiski hleypt í hana um vökvaknúna fiski- ílúgu á efra þilfari, framan við skutrennu. í efri brún skutrennu er vökvaknúin skutrennuloka, sem opnast lóðrétt niður. Fiskmóttöku er lokað vatnsþétt að framan með stálþili, og á því eru tvær lúgur með vökvaknúnum lokunarbúnaði. Á vinnuþilfari er aðgerðarbúnaður frá Klaka hf., þ.e. vökvaknúin færibönd, aðgerðarborð, þvotta- og safnker (þrískipt) og búnaður til flutnings á slógi. Á milliþilfari er unnt að setja uppstillingu, sem rúmar 50 tonn af síld. Á s.b.-síðu eru tvær lúgur, lagnings- og dráttarlúg- ur, og þá er einnig lagningslúga í efra þilfari við b.b.- síðu, aftan við íbúðir. Síðulúgur eru með vökva- drifnum lokunarbúnaði. Klaki sf. Hafnarbraut 25 • Kópavogi • Sími 91-44225 • Fax 9144167 Óskum útgerð og skipshöfn til hamingju Ftieð Þinganesið. Um borð er fiskvinnslubúnaður frá okkur.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.