Ægir - 01.02.1991, Qupperneq 36
88
ÆGIR
2/91
Surimi-matur í Evrópu
Á tímum minnkandi framboðs á
botnfiski fer neysla surimi afurða
(fiskstöppu) vaxandi í allri Evrópu.
Þessi matur á uppruna sinn í
Japan, þar sem hann hefur verið
hluti sjávarvöruneyslunnar um
langan aldur. Uppistaðan er
Alaska-ufsi sem blandaður er
sykri, sterkju og aukefnum.
Algengasta afurðin á vestrænum
mörkuðum er krabbadýra-surimi.
Evrópskur surimi-markaður er enn
mjög háður innflutningi á svip-
uðum afurðum aðallega frá Japan
og Suður-Kóreu. Vinnslustöðvar
eru nú reistar á svæðum þar sem
markaður er í nokkrum mæli.
Aukning er töluverð á evrópska
markaðnum eða um 20-25%
árleg aukning. Neysla í Evrópu-
bandalagslöndum er áætluð um
26.500 tonn árið 1990 og áætlun
gerir ráð fyrir 40.000 tonna neyslu
árið 1992. Surimi-maturinn hefur
mikið verið notaður í allskonar
salöt, en einnig er verið að þróa
frysta stöppu tilþúna fyrir ör-
bylgjuofn. Aðalmarkaður fyrir
þessar afurðir í Evrópu er í Frakk-
landi, þar sem áætluð neysla árið
1990 er 10.000 tonn. Franski
fiskiðnaðurinn hefur einnig fjárfest
í vinnslutækjum í þeim tilgangi að
breyta innfluttu surimi í fullunna
afurð, eða vinna surimi úr stað-
bundnum tegundum, sérstaklega
kolmunna. Um þessar mundir er
eitt verksmiðjuskip með vinnslu á
Norður-Atlantshafi og fjórar verk-
smiðjur sem nýta aðallega innflutt
surimi.
Spánn hefur löngum verið
mikill markaður fyrir flestar sjávar-
afurðir, og það er ekki undrunar-
efni að surimi-unnar afurðir hafa
unnið sér sess á Spáni. Núverandi
neysla á surimi-afurðum er áætluð
um 8.000 tonn, mest úr krabba-
dýrum. Það er engin innanlands-
framleiðsla á surimi á Spáni. Gera
má ráð fyrir að verksmiðjur muni
verða reistar þar, sem og í öðrum
Evrópuríkjum. Spánski surimi-
markaðurinn mun væntanlega
vaxa um 20% næstu árin og verða
um 12.000 tonn árið 1992.
í Bretlandi hefur neysla surimi-
afurða aukisttalsvert. Breski mark-
aðurinn var talinn nema 4.000
tonnum árið 1990, en vex hægar
en sá franski. Áætlun gerir ráð fyrir
5.000 tonna markaði árið 1992.
Mestallt hráefnið er flutt inn, en
það er eitt þýðingarmikið vinnslu-
fyrirtæki í Skotlandi sem notar
innflutt japanskt surimi í fram-
leiðslu á fullunninni afurð og
þessu fyrirtæki vegnar vel. Hluti
framleiðslu þessarar verksmiðju er
fluttur til annarra Evrópuríkja.
Breski markaðurinn er aðallega
fyrir frystar afurðir ekki ferskar.
Gert er ráð fyrir að ítalski markað-
urinn nemi um 1.500 tonnum árið
1991. Surimi-unnar afurðir eru til-
tölulega nýjar á markaðnum og
eru nokkrir erfiðleikar þar vegna
vöntunar á verslunum sem hafa
kæliborð eins og verslanir í
Norður-Evrópu.
Áætlað er að evrópski mark-
aðurinn fyrir surimi geti numið
100.000 tonnum árið 1995.
Verðið á surimi frá Suðaustur-Asíu
hefur verið 3$-6$ fyrir kg. Gert er
ráð fyrir að þessi markaður geti
gefið nokkuð í aðra hönd þegar frá
líður ef vel tekst til. Svipaða sögu
má segja um bandaríska markað-
inn. Vandamálið er frekar vöntun
á hráefni fremur en eftirspurn eftir
afurðinni. Neyslan í Bandaríkj-
unum nam um 350 g/íbúa árið
1989. Nýir möguleikar á blöndun
á kjöti við surimi í Bandaríkjunum
eru sagðir gefa fleiri tækifæri á
bandaríska markaðnum. í
Evrópubandalagslöndunum var
neysla þessi einungis 65 g/ á íbúa.
Veidar
Norðmanna
1990
Bráðabirgðatölur um veiðar Norð-
manna 1990 gera ráð fyrir
200.000 tonna samdrætti í veið-
Enda þótt afli Norðmanna yrði
200.000 tonnum minni árið 1990 en
1989, eru líkur til að aflaverðmætið
verði svipað 1990 og árið áður.