Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1991, Síða 56

Ægir - 01.02.1991, Síða 56
108 ÆCIR 2/91 Loft og síður vinnuþilfars er einangrað með 100 mm steinull og klætt með ryðfríu stáli. Fiskilest: Fiskilest er einangruð með polyurethan og klædd með stáli. Kæling er með kælileiðslum í lofti lestar. Lestin er útbúin fyrir 660 I fiskkör, en í þeim hluta lestar, sem ekki nýtist fyrir fiskkör, er áluppsti11ing. Þá er einnig unnt að hafa uppstillingu í allri lestinni. Aftast á lest er eitt lestarop (1880x1800 mm) með álhlera á karmi. Fiskilúga er fremst á vinnuþilfari. Þá er stigahús að lest, s.b.-megin aftast í íbúðarými. Á efra þilfari, uppi af lestarlúgu, er losunarlúga (2160x2180 mm) með stálhlera slétt við þilfar. Fyrir affermingu er krani. Vindubúnadur, losunarbúnaður: Vindubúnaður skipsins er vökvaknúinn (háþrýsti- kerfi) frá Norlau A/S og er um að ræða tvær togvind- ur, fjórar grandaravindur, tvær hífingavindur, tvær hjálparvindur afturskips fyrir pokalosun og útdrátt á vörpu og tvær bakstroffuvindur, auk þess er neta- vinda frá Sjóvélum hf. Kraftblakkarbúnaður er frá Björshol A/S og losunarkrani frá HMF. Aftast á neðra þilfari, í sérstöku vindurými, eru tvær togvindur (splittvindur), hvor búin einni tromlu og knúin af einum vökvaþrýstimótor. Tæknilegar stærðir (hvor vinda): Tromlumál 325 mmo 1250 mmo Víramagn á tromlu x 870 mm 800 faðmar af 2 3/4" vír Togátak á miðja tromlu 8.9 tonn Dráttarhraði á miðja tromlu 73 m/mín Vökvaþrýstimótor BauerHMH 9-130-110 Afköst mótors 146 hö Þrýstingsfall 180 kp/cnr’ Olíustreymi 390 l/mín Grandaravindur eru fjórar af gerðinni M)9, stað- settar fremst á efra þilfari. Hver vinda er búin einni tromlu (300 mmo x 1450 mmo x 500 mm) og knúin af Bauer HMJ 9-9592 vökvaþrýstimótor, togátak á tóma tromlu (1. víralag) er 10 tonn og tilsvarandi dráttarhraði 65 m/mín. Tvær vindurnar eru auk þess búnar útkúplanlegum keðjuskífum, gerð Mj9-k20.5, og notaðar einnig sem akkerisvindur. Tvær hífingavindur af gerðinni MB7 eru á brúar- reisn, aftan við brú. Hvor vinda er búin einni tromlu (273 mmo x 700 mmo x 400 mm), og knúin af Bauer HMB 7-9592 vökvaþrýstimótor, togátak á tóma tromlu (1. víralag) er 7.5 tonn og tilsvarandi dráttar- hraði 44 m/mín. Úr lest skipsins. Pokalosunarvinda, af gerðinni RR1000, er á tog- gálgapalli. Hún er búin einni tromlu (250 mmo x 650 mmo x 300 nim) og knúin af einum Danfoss OMVS 630 vökvaþrýstimótor um gír (7:1), togátak á tóma tromlu (1. víralag) er 5.0 tonn. Útdráttarvinda, af gerðinni RR500, er staðsett á toggálga. Hún er búin einni tromlu og knúin af einum Danfoss OMVS 315 vökvaþrýstimótor um gír (5:1), togátak á tóma trornlu (1. víralag) er 3.0 tonn. Tvær bakstroffuvindur, af gerðinni S.200, eru á pokamastri, togátak 0.5 tonn. Kraftblökk er af gerðinni Triplex 504/300/2B, og færslublökk af gerðinni Triplex TRH70. Fiskidæla er af 12" gerð frá Karmoy A/S. Netavinda er frá Sjóvélum hf., togátak 3 tonn, og er fremst á vinnuþilfari, s.b.-megin. Aftarlega á togþilfari, b.b.-megin við vörpurennu, er vökvaknúinn losunarkrani, gerð M180K3, lyftigeta 18 tm, armlengd 9 m, búinn 2ja tonna vindu. Rafeindatæki, tæki i brú o.fi: Ratsjá: Kelvin Hughes, Concept 2000 T (3 cm X), 96 sml ratsjá með dagsbirtuskjá S.b.-togvincia skipsins aftast i milliþilfarsrými.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.