Tímarit lögfræðinga - 01.10.1954, Qupperneq 31
að af Islands hálfu Agnar Kl. Jónsson, skrifstofustjóri í
utanríkisráðuneytinu, sem kom fram sem formaður Is-
landsdeildarinnar, Gústav A. Jónasson, skrifstofustjóri,
Jón Krabbe og Einar Bjarnason, fulltrúi í fjármálaráðu-
neytinu. Árið 1947 var stjórnarfundur haldinn í Helsing-
fors og mættu þar dr. Páll Eggert Ölason og Einar Bjarna-
son. Árið 1948, 19. marz, var síðan haldinn stofnfundur
Islandsdeildar Nordisk administrativt Forbund og voru
kosnir í stjórn Agnar Kl. Jónsson, Geir G. Zoega, Harald-
ur Guðmundsson, Þórhallur Ásgeirsson og Einar Bjarna-
son, en í varastjórn: Magnús Gíslason, dr. Þorsteinn Þor-
steinsson, Davíð Ólafsson og dr. Páll Eggert Ólason.
Á stjórnarfundinum í Helsingfors 1947 hafði Islands-
deildin boðið til stjórnarfundar í Reykjavík 1948, og var
sá fundur haldinn 8.—10. júlí. Síðan hefur verið haldið
venju þeirri, sem skapazt hafði, að halda allsherjarmót
þriðja hvert ár, sitt í hverju landi, og stjórnarfundi á
hverju ári, einnig sinn í hverju landi, en þó ætíð þar sem
allsherjarmótin eru haldin og um leið og þau. Allsherjar-
mót var síðast haldið í Helsingfors 1952 og röðin var kom-
in að Islandi 1955, en samþykkt var að falla frá því að
halda allsherjarmót hér í þetta skipti vegna þess, hve
ferðalög hingað eru dýr. Verður það því haldið í Svíþjóð
á næsta ári.
Á aðalfundi íslenzku deildarinnar 23. maí 1950 voru
samþykkt félagslög fyrir hana. Samkv. þeim eiga félagsrétt
skrifstofustjórar, deildarstjórar og fulltrúar í stjórnarráð-
inu og þeir starfsmenn stofnana þeirra, nefnda og ráða, sem
fara með framkvæmdavald og að dómi félagsstjórnarinnar
gegn hliðstæðum stöðum. Enn fremur prófessorar og
dósentar í laga- og hagfræðideild háskólans. Menn, sem
komast í þessar stöður, verða af sjálfu sér félagar, ef
þeir vilja, og er þeim þetta að sjálfsögðu frjálst. Þeim
mönnum, sem hafa verið félagar en hverfa úr hópi fram-
angreindra embættismanna, mun sennilega frjálst að vera
áfram í félagsskapnum, ef þeir hafa áhuga fyrir honum.
Svo virðist mér a. m, k. vera í deildum hinna Norður-
157