Tímarit lögfræðinga - 01.10.1954, Blaðsíða 35
unum við Rjukan, í fyrra skiptið með því að ráðast beint
inn í verksmiðjuna og eyðileggja vatnið með sprengju, en
í síðara skiptið með því að koma fyrir tímasprengju í
járnbrautarferjunni yfir Tinnsjöen, sem þeir höfðu frétt
að hefði þunga vatnið innan borðs, svo að hún sprakk í
loft upp, sökk á miðju vatninu og liggur þar enn með öll-
um farmi.
Tjónið, sem þá var unnið Þjóðverjum er ómetanlegt og
ómetanleg eru áhrif þau, sem ósérplægni þessara ungu
Norðmanna og annarra margra samlanda þeirra höfðu á
norsku þjóðina. Sagan, sem aldaröðum saman mun lifa,
var mönnum á þessum slóðum í fersku minni, og sumir
helztu þátttakendurnir í viðburðum hennar voru enn í
sömu hversdagslegum störfunum, sem þeir höfðu verið í
árum saman.
Úr ferðalagi þessu komu menn til Oslo eftir rétta 2
sólarhringa. Veðrið hafði leikið við þá alla vikuna, frá
því að lögfræðingamótið hófst, og var þetta talinn fyrsti
góðviðriskafli sumarsins í Suður-Noregi.
Reykjavík, 31. október 1954.
Einar Bjarnason.
161