Tímarit lögfræðinga - 01.10.1954, Qupperneq 40
Iðja ekki með honum hafa gengið á samningsskuldbincl-
ingar sínar gagnvavt Fél. ísl iðnrekenda (F.I.I.).
Þá var ekki heldur talið, að Áburðarverksmiðjan hefði
með inngöngu sinni einni í Félag ísl. iðnrekenda fallið
undir ákvæði kjarasamnings þess, er gerður var við Iðju
31. marz 1954, skömmu áður en Áburðarverksmiðjan
gekk í F.I.I. Sagt var þó, að almennt gilti sú regla, að
ný iðnfyrirtæki, sem gengju í F.I.I., féllu án sérstakra
samninga undir ákvæði þess kjarasamnings, er í gildi
væri á iiverjum tíma. En um Áburðarverksmiðjuna stóð
svo sérstaklega á, að enginn félagsmaður úr Iðju starf-
aði í þjónustu verksmiðjunnar. Það var og upp komið, að
bæði fyrirsvarsmaður F.I.I. og fyrirsvarsmaður Áburðar-
verksmiðjunnar vissu um áðurnefnt desembersamkomulag
Iðju og Dagsbrúnar varðandi ófaglærða starfsmenn
Áburðarverksmiðjunnar, löngu áður en Iðja og F.I.I. end-
urnýjuðu kjarasamning sinn 31. maí 1954 og höfðu fylgzt
með því, að Iðja tók ekki, eftir að desembersamkomulagið
var gert, þátt í samningaumleitunum þeim, sem síðar fóru
fram milli Dagsbrúnar og Áburðarverksmiðjunnar um
kaup og kjör ófaglærðra starfsmanna. Hafði og ekkert
það gerzt í málum þessum, sem gæti gefið F.l.I. og Áburð-
arverksmið.junni ástæðu til þess að ætla, að nokkur breyt-
ing hefði orðið á því, hvaða aðili færi með hagsmunagæzlu
nefndra starfsmanna, sem allir voru félagsmenn í Dags-
brún. Var því ekki talið, að F.l.I. eða Áburðarverksmiðj-
an liefðu mátt gera ráð fyrir því, að ákvæði oftnefnds
k.jarasamnings gætu náð til Áburðarverksmiðjunnar, þótt
hún gerðist félagi í F.l.I. Dómur 16/10 ’54.
H. G.
166