Tímarit lögfræðinga - 01.04.1956, Side 18
374 eru ekki til í Konungsbók né handritabrotunum. Samt
er augljóst, að þessu litla orði er ofaukið, og að það hlýtur
annaðhvort að vera ritvilla eða betrumbót afritarans, sem
ekkert skildi í lögum, en vissi, að Island og Grænland
voru aðskilin af sæ, og því tvö lönd, þannig séð.
Avnnor rekst strax á setninguna, sem það stendur í,
því einasta möguleg skýring á því, að enginn sannaðar-
mannanna þurfti að hafa út þar verið þegar vígið var
vegið eða síðar, er sú, að á íslandi voru þeir innan þess
þjóðfélags, þar sem vígið var vegið. Avnnor er andstætt
hinni tæmandi greinargerð fyrir öllum erlendis vígum í
köflunum 368—372 næst á undan, og að þau gerast öll
austur. Avnnor rekst á það, að vígin á Grænlandi í kap.
373 og 374 eru ekki erlendis víg, heldur aðeins víg. Avnnor
er andstætt öllu efni beggja kapítulanna 373 og 374 og
andstætt öllum öðrum sönnunum Grágásar fyrir því, að
Grænland sé innanlands, svo og þvi, að öll útlönd sjeu 1)
austur og 2) undir veldi einhvers konungs. Allt þetta mikla
og órengjaniega efni laganna verður að hafa sitt mál, hvað
sem þessu litla aukaorði líður.
Við stöndum því þannig, að annaðhvort verður þetta
litla orð, avnnor, að víkja, eða kapítularnir, sem það stend-
í, verða að víkja, og auk þess allir lagastaðir í Grágás og
lögbóltunum, er gefa upplýsingar um réttarstöðu Græn-
lands, því þetta litla orð er einasti staður í öllum heimild-
um, er vottar gegn því, að Grænland hafi verið nýlenda
Islands.
Orðið avnnor er því annaðhvort ritvilla eða viljaákveðin
„leiðrétting" afritara. Það verður því að strikast út úr
textanum, áður en hann er notaður.
Upphafið á kap. 369 í Staðarhólsbók um erlendis víg
hljóðar svo:
,,Ef varr lande verðr veginn erlendis. oc verðr vegandi
iafn sekr um víg þat sem a váro lande væri vegit. þo er
sócn hcr til um erlendis víg. þoat sott se erlendis eða sætz
á nema sa maðr hafe þar at lavgom aðsætzt er hann er
80