Tímarit lögfræðinga - 01.06.1957, Side 66
Bókarfregn
Ólafur Lárusson: „Yíxlar og tékkar“. Reylcja-
vík 1957. — Hlaðbúð.
Urn alllangan tíma hefur fjölrituð bók eftir dr. ,Ólaf
Lárusson verið notuS viS kennslu í laga- og hagfræSi-
deild Háskólans.
Bókin hefur veriS prentuð, að þvi er mér virðist nær
óbreytt, og gefin út af forlaginu „HlaSbúS" (Ragnar Jóns-
son hrl.). Forlagið befur áður gefið út nokkrar lögfræSi-
bækur — m. a. eftir dr. Ólaf. Má þar nefna Kafla úr
kröfurétti (1948). Eignarétt (1950) og Sjórétt (1951).
Hlaðbúð gaf og út: Afmælisrit til dr. Ólafs. Persónurétt
eftir dr. ÞórS Eyjólfsson gaf forlagið og út 1949. Og eftir
Ölaf Jóliannesson prófessor gaf forlagið út Skiptarétt
1954, en Stjórnarfarsrétt 1955. Hefur sumra þessara
bóka verið getið hér í ritinu, en þó ekki sem skyldi. Eink-
um verSur það ekki talið vansalaust, að siðastnefndu bók-
ai'innar skuli ekki hafa verið getið. Verður væntanlega
úr þvi bætt siðar, enda um mjög merka bók að ræða,
sem jafnframt er brautryðjandastarf hér á landi.
En þvi er útgáfustarfsemi Hlaðbúðar á sviði lögfræði
nefnd hér, að liún er allrar viðurkenningar verð af hálfu
lögfi-æðinga.
Bók dr. Ólafs — Víxlar og tékkar — verður ekki rit-
dænxd hér, heldur er hennar getið til ábendingar.
Bókin er fvrst og fremst skrifuð sem kennslubók. Hún
er þó engu að siður handhæg til íxota i daglegu lífi, ekki
aðeins fyrir lögfi'æðinga, heldur einnig kaupsýslumenn
og aðra, er að viðskiptamálum vinna. Þetta er kostur, en
112
Tímarit lögfrœöinga