Tímarit lögfræðinga - 01.06.1965, Blaðsíða 6
ríkjandi þekkingarástandi og hugmyndaheimi alls þorra
almennings.
Ný hugarstefna og ný þekking eru báðar því marki
brenndar að verka í tvær áttir, hæði til að hafa bein
áhrif á löggjöfina og til að brevta ríkjandi þjóðfélags-
aðstæðum.
Afbrotafræði og afstaða hennar gagnvart refsirétti.
Orðið afhrotafræði er bein þýðing alþjóðaorðsins
„krímínólógía“ (t. d. da. kriminologi, en. criminology,
ít. criminologia). Svo sem þessi merking' orðsins gefur
til kynna, hefur það verið og er grundvallarverkefni
þessarar greinar að fjalla um afbrot, kanna með vís-
indalegum aðferðum orsakir þeirra, eðli og útbreiðslu.
Var reyndar lauslega að þessu verkefni vikið hér að
framan, er rætt var um þau áhrif, sem könnun á þessum
efnum hefur haft á þróun refsiréttar.
Refsiréttur og afhrotafræði liafa sameiginlegt rann-
sóknarandlag, þar sem afbrotið er. En margt skilur þó
á milli, þegar litið er til viðhorfa og vinnubragða í þess-
um greinum. Refsirétti er fyrst og fremsl ætlað að gera
grein fyrir og skýra gildandi réttarreglur, er bjóða
mönnum eða hanna ákveðna háttsemi að viðlagðri refs-
ingu eða öðrum viðurlögum. Hann er að höfuðstefnu
formbundin fræðigrein, er bvggir á ákveðnu þjóðfélags-
mati. I honum er liins vegar lítt gefinn gaumur að
spurningum sem þeim, hvaða hrot séu raunverulega
framin, við hvaða aðstæður þau séu framin, hver sé
undirrót þeirra og hver sé afstaða einstaklinga eða ein-
staklingshópa gagnvart ákveðnum refsiákvæðum. Hér
er það, sem afbrotafræðin kemur til skjalanna. Hún
kannar hið raunverulega ástand i þessum efnum,
skyggnist hak við formhuluna. Til þess að svo megi
verða, hljóta rannsóknaraðferðir liennar að vera á vís-
indalegum grundvelli, að svo miklu leyti sem við verð-
ur komið. Hvers konar tilfinningaafstaða og fyrirfram-
68
Tímarit lögfræðinga