Tímarit lögfræðinga - 01.06.1965, Qupperneq 40
skilin að i náinni framtíð; en tók undir hugmynd Jóns
Finnssonar um að gera hreytingar þar að lútandi í
áföngum.
Benedikt Sigurjónsson, hrl. sagði of djúpt tekið í ár-
inni hjá M. Thoroddsen varðandi liúsnœðismál og launa-
kjör. Ifann sagði aðstöðu lögmanna erfiða vegna skipu-
lagsleysis lijá dómaraembættum og nefndi dæmi um
það. Hann vék að úreltum hókunaraðferðum og áleit,
að venjuleg hraðritun, Iiraðritunarvélar og hein vélrit-
un á vitnaleiðslum jafn óðum væri það, sem koma
skyldi. Hann vakti atliygli á, að lögmenn sætta yfir-
gnæfandi meirihluta þeirra mála, sem þeir fá í hendur
án nokkurs atheina sáttanefnda eða dómstóla.
Siðan tók til máls Björn Bjarman, lögfræðingur og
ræddi einkum um kjaramál og nýfallinn kjaradóm.
Þá talaði Jón Magnússon, hdl. um seinagang í einka-
málum. Tók hann undir ummæli Ben. Sigurjónssonar,
hrl. og Magnúsar Thoroddsen, dómarafulltrúa um hrýna
nauðsyn á að taka upp vélrænt kerfi við vitnaleiðslu.
Næstur tók til máls Þórður Björnsson, yfirsakadóm-
ari og fjallaði sérstaklega um réttarfar í opinberum
málum og aðhúnað sakadómaraembættisins í Rvík, en
hann væri nú mjög góður. Þórður kvað vélræna upp-
töku í réttarhöldum nauðsynlega. Ræddi síðan um ýmis
raunliæf atriði úr réttarframkvæmd í sakamálum.
Hann livatti til að Lögfræðingafélag ísl. efndi til sér-
stakra funda um ýmsa þætti í máli því, sem hér væri
til umræðu.
Þór Vilhjálmsson, borgardómari sagði, að seint myndi
ganga að hæta slcipulag hjá dómstólum. Þór sagði siðan
m. a.: Aðeins tvennt dugir til að flýta fyrir niálum, i
fyrsta Iagi að fjölga dómurum og slarfsliði dómstóla og
í öðru lagi að stytta dómana sjálfa.
Dr. juris Gunnlaugur Þórðarson ræddi um sáttanefnd-
ir, byggingamál dómhúsa o. fl.
Fundinn sóttu um 90 manns og er það líklegast fjöl-
102
Tímarit lögfræcíiru/a