Tímarit lögfræðinga - 01.11.1980, Side 38
Hér má einnig benda á, að stundum má líta á vanrækslu á að veita
aðilum kost á að tjá sig sem brot á rannsóknarskyldu stjórnvalds, og
getur það þá verið sjálfstæð ógildingarástæða.
c) Niðurstaða.
Samkvæmt öllu því sem hér hefur verið rakið, er niðurstaða mín sú,
að andmælareglan verði ekki talin almenn réttarrégla í íslenskum
stjórnarfarsrétti án beinnar lagaheimildar, nema á tilteknum tveim
sviðum, þ. e. þegar stjórnvald er úrskurðaraðili og þegar mikilvægir
fjárhágslegir hagsmunir aðila eru verulega skertir með stjórnvalds-
ákvörðun. En þar sem andmælareglan felur í sér mikilvægt réttar-
öryggisatriði, verður að telja rétt de lege ferenda, að henni verði beitt,
þar sem því verður við komið, enda gangi það ekki augljóslega í ber-
högg við aðrar meginreglur stjórnarfarsréttarins, svo sem regluna um
skilvirkni stj órnsýslunnar.
29. norræna lögfræðingamótið verður haldið í Stokkhólmi 19.—21. ágúst
1981. Skráning þátttakenda fer fram eftir áramót. Ráðgert er, að umræðu-
efni verði 13 þ. á m. þessi: Frelsi, réttaröryggi og skilvirk stjórn samfélags-
ins; mótmælaaðgerðir; réttindi sjúklinga; réttarstaða útlendinga; ábyrgð á
vinnuaðstöðu; eignir hjóna og sambýlisfólks; ábyrgð stjórnarmanna; þrætu-
mál daglega lífsins, — meðferð hjá dómstólum eða nefndum.
160