Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Page 19

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Page 19
læga ábyrgðin sé háð því, að slys hljótist af einhverjum þeim sérstöku hættum, sem tengdar eru skipum, siglingum eða sjómennsku. Ákvæð- ið er svo víðtækt, að álíta verður, að útgerðarmaður beri hlutlæga bótaábyrgð vegna hvers kyns slysa, sem ráðinn maður í skiprúm verð- ur fyrir, ef önnur skilyrði 2. mgr. 205. gr. siglingalaga eru fyrir hendi, þ.e. slys við vinnu í þágu skips o.fl. Útgerðarmaður ber skv. þessu hlutlæga ábyrgð vegna slysa við störf, sem ekki eru að neinu leyti hættulegri en annað það, sem menn taka sér fyrir hendur í eða utan starfs. Sem dæmi um þetta má nefna slys skipverja, sem hrasar á gólfi í borðsal skips, er liggur við bryggju, eða sker sig, þegar hann er að skera sér brauð. I framkvæmd reynir þó afar sjaldan á þessa víðtæku reglu vegna bráðabirgðaákvæðis siglingalaga um slysatrygg- ingu sjómanna, svo sem vikið var að hér að framan. Svið hinnar víðtæku ábyrgðar eftir 3. gr. alþjóðasamnings frá 29. nóvember 1969 um olíumengun sjávar takmarkast við mengunartjón „af völdum olíu sem lekið hefur eða verið losuð úr skipi.“ Ef tjón verður með öðrum hætti en nú var lýst, yrði eigandi skips ekki ábyrg- ur, nema á grundvelli sakar. Flutningur umbúðalauss olíufarms með skipi er glöggt dæmi um starfsemi, sem felur í sér sérstaklega mikla hættu á yfirgripsmiklu tjóni. Ábyrgðarregla 3. gr. samningsins er þó ekki bundin við stórtjón. Hún á einnig við minni háttar mengunar- tjón, enda séu önnur bótaskilyrði fyrir hendi. 1 1. gr. samningsins eru skilgreind ýmis hugtök, svo sem „skip“, „olía“ og „mengunartjón“. Skilgreiningarnar auðvelda skilning á efni bótareglu 3. gr. » 2.1.3. Sérstakar takmarkanir á gildissviði reglnanna Fram hefur komið, að lagaákvæðin, sem hér um ræðir, mæla ekki svo fyrir, að rekstraraðili beri hlutlæga ábyrgð á öllu tjóni, sem hlýst af rekstri hans, án tillits til hvernig tjón ber að höndum. Gildissvið reglnanna er háð almennum takmörkunum, svo sem að tjón hafi hlot- ist af því, að starfsemin sé sérstaklega hættuleg (umferðarlög) eða tjónþoli teljist til ákveðins hóps manna (205. gr. siglingalaga). Einn- ig eru í öllum umræddum lögum sérstök ákvæði um eigin sök tjón- þola, en um þau vei’ður ekki fjallað hér. Auk hinna almennu takmark- ana sætir hlutlæg ábyrgð ýmsum sérstökum takmörkunum samkvæmt greindum lagaákvæðum. Þessar lögákveðnu undantekningar frá hlut- lægri ábyrgð eru af ólíkum toga spunnar. Verður nú gefið örstutt yfir- lit yfir þær og þeim skipað í flokka eftir eðli þeirra. (a) Tjón hlýst á öðrum sams konar „rekstri“. Hlutlæg ábyrgð gildir ekki, er skráningarskylt vélknúið ökutæki skemmist í árekstri við ann- 13

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.