Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Blaðsíða 20

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Blaðsíða 20
að slíkt tæki eða þegar loftfar eða farmur skemmist í árekstri loft- fara. Eigandi farartækis, sem valdið hefur tjóni á öðru slíku tæki, ber því yfirleitt ekki bótaábyrgð vegna eignaskemmda á síðarnefndu tæki, nema skilyrði almennra skaðabótareglna séu fyrir hendi, sjá þó Hrd. 1964,138.i4 Reglur umferðarlaga og loftferðalaga um þetta eru ekki samhljóða, en enginn verulegur efnismunur er á reglum laganna um tjón á tækj- unum sjálfum.15 (b) Farþegar og farmur. Farþegar í ökutæki eða loftfari og eigend- ur muna njóta einungis bótaréttar eftir almennum skaðabótareglum gagnvart þeim, sem ábyrgð ber á tæki því, sem flytur þá, ef flutt er án endurgjalds (Smávægileg undantekning er í 2. málsl. 97. gr. loft- ferðalaga). Sé flutt gegn gjaldi, er réttarstaða tjónþola betri (hlutlæg ábyrgð eftir umferðarlögum, en sakarlíkindarégla skv. loftferðalögum). 1 nágrannalöndunum hefur víðast hvar verið horfið frá því að gera mun á réttarstöðu farþega í bifreiðum eftir því, hvort flutt er gegn gjaldi eða ekki. Hinar sérstöku reglur um bótarétt farþega og eig- enda farms í flugvélum eru í samræmi við alþjóðareglur og er yfirleitt ekki litið á þær sem skaðabótareglur utan samninga. (c) Tjón innan marka flugvallar. Hlutlæga ábyrgðarreglan í 133. gr. loftferðalaga, sbr. 1. mgr. 134. gr., tekur ekki til tjóns, er verður á mönnum eða hlutum innan marka viðurkennds flugvallar. Rökin fyrir því eru m.a. þau, að þeim, sem eiga hágsmuni á flugvallarsvæði, megi vera ljós sú hætta, er stafar af loftförum. Tjón komi því ekki niður á „saklausum“ þriðja manni.10 Svipuð rök hafa verið færð fram til stuðnings því, að farþegar og eigendur farms í bifreiðum og flug- vélum og aðrir, sem tengjast „hættulegum atvinnurekstri" með samn- ingi, skuli ekki njóta bótaréttar eftir hreinum hlutlægum skaðabóta- réglum.17 (d) Óviðráðanleg atvik o.fl. Engar af þeim víðtæku bótareglum, sem hér um ræðir, aðrar en reglan um olíumengun í Brusselsáttmálanum frá 1969, gera ráð fyrir, að óviðráðanleg atvik („vis major“), eins og styrjöld eða náttúruhamfarir, leysi rekstraraðila undan ábyrgð. Ákvæði umferðarlaga, loftferðalaga og 205. gr. siglingalaga má skýra svo, að 14 Um rök fyrir þessari undantekningu frá hlutlægri ábyrgð sjá m.a. Arnljótur Björnsson, 1975, 127-8. 15 Um rétt farþega og eiganda muna, sem fluttir eru í skráningarskyldu ökutæki, gagnvart eiganda annars ökutækis sjá Arnljótur Björnsson, 1975, 128-9. 16 Sjá nánar Lfídrup, 356. 17 Sbr. t.d. Ussing, 1947, 128. 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.