Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Blaðsíða 54

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Blaðsíða 54
er einnig á það að líta, að ákvæðið í 29. gr. 1. 56/1978 á sér hliðstæðu og fyrirmynd í dönskum lögum um „markedsforing" frá 1974, en at- hyglisvert er, að þarlendir fræðimenn hafa talið, að einkaréttarlegar lögfylgjur tengjist ekki því ákvæði, þ.e. að því verði ekki beitt sem ógildingarheimild (þar eigi þá t.d. við 36. gr. samningalaganna). Laga- ákvæðið hafi, með öðrum orðum, einungis gildi að opinberum rétti. Ekki virðist óeðlilegt að þetta sé a.m.k. haft til einhverrar hliðsjónar við skýringu íslenska ákvæðisins. Héraðsdómarinn í máli því, sem hér er til umræðu, tók að vísu þá afstöðu, að ákvæðið í 29. gr. hefði einkaréttarlegt gildi, en taldi, svo sem fyrr segir, eðlilegt að beita þrengjandi skýringu og takmarka ákvæðið við ábyrgðartímann. Hæstiréttur hafnaði hins vegar þessum skýringarkosti og beitti ákvæðinu hiklaust um það ákvæði ábyrgðar- skilmálanna, sem fjallaði um flutningskostnað. Er í sjálfu sér þakkar- vert að svo afdráttarlaus niðurstaða hafi fengist í því efni, en dóm- urinn svarar þó ekki öllum spurningum, sem efnið varða, og vekur raunar aðrar. Svo virðist sem dómendurnir hafi þegar nokkurn fyrir- vara um víðtæki ákvæðisins í 29. gr., þegar þeir sjá ástæðu til að segja: „orðalag þessa ákvæðis gefur ekki tilefni til verulegs vafa í máli því, sem hér er til úrlausnar.“ Gæti þetta bent til þess, að þeir hafi verið í einhverjum vafa um túlkun ákvæðisins að öðru leyti, og tvímælalaust er, enn sem fyrr, full ástæða til að líta á 29. gr. sem undantekningarákvæði, sem verði að „umgangst" með fullri varúð. Eftir að víðtæk ógildingarheimild var lögtekin í nýrri 36. gr. samn- ingalaga, vorið 1986, sýnist raunar mun eðlilegra að nota hana til ógildingar samningsákvæða heldur en 29. gr. verðlagslaganna, hlið- stætt því sem viðurkennt er í danskri lögfræði. Á það er hins vegar að líta, að ákvæðið nýja í 36. gr. samningalaga kom ekki til sögunnar fyrr en tæpum tveim og hálfu ári eftir að kaup þau gerðust, sem um- rætt dómsmál fjallaði um. Engu að síður lætur Hæstiréttur ekki hjá líða að vitna til þessa síðastnefnda ákvæðis, en þó með næsta óvenju- legum hætti, þegar hann segir: „Ákvæði 29. gr. laga nr. 56/1978 er í samræmi við almenn viðhorf um lagavernd kaupanda og neytenda- vernd, svo og það viðhorf, sem markar samningsrétt hér á landi eftir breytingu þá á lögum nr. 7/1936 urn samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, sem gerð var með 6. gr. laga nr. 11/1986.“ Vísun með þess- um hætti til óljósrar löggjafarstefnu eða „almennra viðhorfa“ og laga- ákvæðis, sem kom til sögunnar löngu eftir að þeir atburðir gerðust, sem mál þetta snýst um, er sjaldgæf í íslenskum dómum, og þótt víðar væri leitað. 132
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.