Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Qupperneq 60
BÓKAFREGN
Út er komin bókin Verndun hafsins eftir Gunnar G. Schram lagaprófessor.
Undirtitill er Hafréttarsáttmálinn og íslensk lög. Bókaútgáfa Orators gaf út,
Reykjavík 1988.
í formála kynnir höfundur ritið þannig:
„Þessi bók fjallar um hafið umhverfis landið og vernd þeirra auðlinda sem
þar er að finna. Um langan aldur var ofveiði fiskistofnanna helsta vandamál-
ið sem þar var við að etja. Það er nú úr sögunni eftir að þjóðin öðlaðist ein
lögsögu yfir öllum landgrunnsfiskimiðum. En eftir sem áður fer vaxandi ár
frá ári sú hætta sem hafinu við ísland stafar af mengun og öðrum skaðlegum
umhverfisáhrifum. Sú hætta er raunveruleg. Það sýna dæmin undan strönd-
um ýmissa nágrannaþjóða.
í þessu riti er fjallað um á hvern hátt við íslendingar getum brugðist við
þessari hættu sem raunar er alþjóðleg í eðli sínu. Mikilvæg vopn ( þeirri
baráttu er skynsamleg löggjöf og víðtæk alþjóðasamvinna. Gerð er grein
fyrir helstu ákvæðum íslenskra laga á þessum vettvangi, samvinnu þjóðanna
við Norður-Atlantshaf um umhverfisvernd á hafinu og loks ræddur sá þáttur
hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna sem um þetta efni fjallar.
Áhugi á umhverfismálum hefur farið vaxandi hér á landi á síðustu árum.
Mönnum verður æ betur Ijós nauðsyn þess að vernda líf og land og þá ekki
síður hafið og auðlindir þess. Að mörgu er að hyggja i þeim efnum, en lögin
og aðrar réttarreglur eru þar sá grundvöllur sem byggja verður á.“
Bókin Verndun hafsins er ríflega 200 blaðsíður í meðalstóru broti. Efni
hennar er skipt í þrjá meginhluta. ( fyrsta hluta er fjallað um réttarreglur um
verndun hafsins á um 40 bls. Annar hlutinn ber heitið Alþjóðasamningar og
samvinna og er 16 síður. Þriðji hlutinn er veigamestur; þar er fjallað um
Hafréttarsáttmálann á rúmlega 100 síðum. Bókin hefst á inngangi, en aft-
ast eru heimildaskrá, lagaskrá og atriðisorðaskrá og loks viðauki: XII. hluti
hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna: Verndun og varðveisla hafrýmisins.
Verndun hafsins kostar kr. 2900 í Bóksölu stúdenta.
Jón Ólafsson, hrl. Túngötu 5. Reykjavík P. O. Box 1278. Sími 12895 Viðtalstími kl. 3-4 Skúli J. Pálmason, hrl. Jón Finnsson, hrl. Sveinn H. Valdimarsson, hrl. Bankastræti 7. Pósthólf 606 Sími23338
Lögmenn við Austurvöll Fkarnhéðinn Þórisson, hrl. Gísli Baldur Garðarsson, hrl. Siamundur Hannesson, hdl. Tómas Þorvaldsson, hdl. Pósthússtræti 13. Pósthólf 476 121 Rvlk. S. 28188. Telefax 623424 Lögmenn: Eyjólfur Konráð Jónsson Hjörtur Torfason Sigurður Hafstein Sigtúni 7. Sími 29600. Símn.: JUS Telex 2328. Telefax 689512
138