Tímarit lögfræðinga - 01.05.1991, Blaðsíða 50
4. DEILDARFORSETI
Arnljótur Björnsson, prófessor, tók við starfi forseta lagadeildar hinn 15.
september 1990 af Sigurði Líndal, prófessor, sem gegndi starfi deildarforseta frá
15. september 1988 til 15. september 1990. Stefán Már Stefánsson, prófessor er
varaforseti lagadeildar.
5. SKRIFSTOFA LAGADEILDAR
Guðríður Magnúsdóttir var skipuð skrifstofustjórifrá 1. janúar 1990. Hún hefur
starfað á skrifstofu deildarinnar frá 1. september 1987. Ásta E. Jónsdóttir er nú
fulltrúi á skrifstofu lagadeildar (í hálfri stöðu). Ásta hóf störf í lagadeild í
september 1985.
6. ERLENDIR GESTIR
Mánudaginn 12. mars 1990 flutti dr. Anne Griffiths við Edinborgarhá-
skóla fyrirlestur á vegum lagadeildar. Fyrirlesturinn nefndist, „Disputing
the Family: Legal Rules of Social Processes.“ Fimmtudaginn 15. mars
1990 flutti Elena Lúkjanova lögfræðingur frá Sovétríkjunum fyrirlestur um
„peristrokju“ og mannréttindi. Miðvikudaginn 18. apríl 1990 flutti Jyrki
Uusitalo, sérfræðingur við „Rannsóknarstofnun Finnlands um löggjöf og
lagaframkvæmd“ opinberan fyrirlestur. Fyrirlesturinn nefndist „Evolution,
Revolution and the Epistemology of Legal Analysis.“ Mogens Koktved-
gaard prófessor við lagadeild Hafnarháskóla hélt fyrirlestur mánudaginn 3.
desember 1990. Fyrirlesturinn nefndist „Immaterialrettens udvikling og
aktuelle problemer.“
7. ORATOR
Á aðalfundi Orators, sem haldinn var á haustmisseri 1990, var Baldvin B.
Haraldsson kosinn formaður félagsins. Varaformaður er Sesselja Árnadóttir.
Bjarki Diego var kosinn ritstjóri Ulfljóts.
Arnljótur Björnsson
48