Tímarit lögfræðinga - 01.09.1992, Qupperneq 4
Ungverjaland, Tékkóslóvakía, Pólland og nálega hálft Þýskaland lutu þessum
örlögum. Allt fram yfir síðustu heimstyrjöld voru Frakkland, Niðurlönd og
Bretlandseyjar ein í Vesturevrópu, en þá fór að fjölga svo um munaði í þessum
hluta álfunnar. Við bættust Norðurlönd, Íbería, Ítalía og jafnvel Grikkland og
Anatólía. Suðurmörk Norðurevrópu, sem ýmist höfðu numið við Kongeáen,
Kolding, Suðurá, Danavirki, Eider eða Elbu hurfu nú allt að Alpafjöllum og
Japan var tekið í tölu Vesturlanda. Nú er öll þessi heimsmynd úr sögunni og mál
til komið að nefna hvað eina sínu rétta nafni, en ný valdahlutföll valda enn usla í
Evrópu. Eistur (Eistar á fjölmiðlamáli), Lettar og Litháingar eiga nú að hverfa í
þjóðahaf Norðurlanda. íslendingar, sem gjarnt er að líta á land sitt sem smáálfu
milli Vesturheims og Norðurálfu, láta nú undan ofurafli sem togar þá vanbúna
inn í Evrópu. Af því tilefni hleyptu íslensk stjórnvöld her málvísindamanna á
enska þýðingu laga Evrópubandalagsins og létu þýða hana á íslensku. Þess var
ekki gætt að frumtextarnir voru franskir. Þeir sem hafa fengist við samanburðar-
lögfræði vita að nokkuð glögg skil eru milli meginlandsréttar og Common Law
svo að merking vill ganga til í þýðingum þar sem hugtakakerfin eru ólík.
íslenskur réttur og lögfræði eru af ætt rómversk-germansks réttar meginlandsins
og er því minni vandi að þýða lagatexta af hvaða meginlandsmáli sem er en
ensku. Hér hefur verið hafður á háttur sem minnir á samkvæmisleik þar sem orði
er hvíslað í eyra og látið ganga hringinn. Seint um síðir varð mönnum Ijóst að allt
hið mikla starf mundi verða að litlu gagni þar sem íslensku þýðingarnar yrðu
ónothæfar við lögskýringu og er nú unnið að leiðréttingu þeirra með samanburði
við frumtexta.
íslensk málhefð hefur ekki alltaf hvikað fyrir erlendu valdi og hinu sama
gegnir um hlýðni við innlent vald. Bær sem íbúarnir nefna Helsingör heitir
Helsingjaeyri á óbrjálaðri íslensku og Göteborg Gautaborg. Á máli íslenskra
flugmálayfirvalda heita þessir staðir Elsinore og Gothenburg, sem vert er að vita
ef menn vilja rata á bás í íslenskri flughöfn. Hina fornu ríkishöfuðborg
íslendinga nefna þessi stjórnvöld Copenhagen.
Löggjafinn streitist við að setja lög um kyrrsetningu, en á dómstólamáli
nefnist þetta réttarúrræði löghald hvað sem á dynur. Raunar væri gott að eiga
það hugtak til góða eigi bráðabirgðaúrræðum eftir að fjölga. Við síðustu
endurskoðun sveitarstjórnarlaga hvarf hugtakið sýslunefnd úr flokki heita
lifandi félagsfyrirbæra og þar með úr stjórnsýslumáli. Kaupstaðir glötuðu
sérstöðu sinni að lögum án þess að það hefði merkjanleg áhrif á málvenju.
Orðinu bær bættist merkingartilbrigði. í því sambandi gerði sérkennileg rang-
hugmynd vart við sig. Þegar hreppur umhverfðist í bæ töldu ráðamenn þessara
byggða að nafn sveitarfélagsins yrði að fela í sér orðið bær, dæmi: Garðabær,
Mosfellsbær og jafnvel Egilsstaðabær, en Stykkishólmur hættir ekki að heita
svo, þótt bæjarstjórnin vilji e.t.v. kalla staðinn Stykkishólmsbæ. Eitt merkasta
82