Tímarit lögfræðinga - 01.09.1992, Síða 71
að sér að fjalla um málefni BHM innan stjórnarinnar. Nefndarmönnum eru
þökkuð góð störf í þágu félagsmanna, sem virða að samskipti félagsins við BHM
séu í góðum farvegi.
IX. FÉLAGASKRÁ OG FÉLAGSGJÖLD
Sami háttur var hafður og áður, að senda 683 gíróseðla til þeirra félagsmanna
sem taldir eru líklegir til að greiða félagsgjaldið, sem nú var ákveðið kr. 2.900.
Af þeirri fjárhæð renna kr. 840 beint til BHM. Félagsmenn eru hvattir til að
greiða félagsgjöld sín í tíma og leggja þar með sinn skerf til að halda uppi
félagsstarfinu. Með tölvunotkuninni er nú unnt að sjá á augabragði hvernig
félagsmenn standa sig að þessu leyti.
X. SAMSTARF VIÐ LÖGFRÆÐINGAFÉLÖG Á NOÐURLÖNDUM
í júlí barst félaginu bréf frá Lögfræðingafélagi Noregs, Norges Juristforbund,
um samstarf félaganna á Norðurlöndum. Þar lýsti framkvæmdastjóri félagsins,
Ulf Ertzaas, hinu góða samstarfi framkvæmdastjórna félaganna, sem halda
árlega fund í einu landanna. Hann lýsti vilja framkvæmdastjórnanna til að fá
ísland með í samvinnuna, og tilkynnti um fund í Osló 4.-6. september í ár, og að
einhugur væri um að bjóða fulltrúa frá íslandi til fundarins, svo og ferðir og
uppihald. Ákveðið var að taka þessu höfðinglega boði og fór formaður á
fundinn og dvaldist í góðu yfirlæti hjá Norðmönnum þessa daga. Er skemmst frá
því að segja, að félögin í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi eru
stéttarfélög, sem sjá um launamál, kjarasamninga, tryggingar og slík mál sinna
félagsmanna. Þess vegna eru framkvæmdastjórnir þeirra voldugar og miklar
skrifstofur með umfangsmikla starfsemi. í Danmörku og Svíþjóð eru hagfræð-
ingar með í félögunum að auki. Á fundinum var því rætt um málefni sem
Lögfræðingafélag íslands fjallar ekki um að ráði. Samstarf við þessi félög er þó
vel hugsanlegt og æskilegt, og kemur í hlut næstu stjórnar að kanna það nánar.
XI. STJÓRNARSAMSTARF
Stjórnarsamstarf hefur verið eins og best verður á kosið. Allir stjórnarmenn
hafa lagt sig fram í störfum sínum, sem hafa verið mikil og oft tímafrek. Þakka ég
öllum stjórnarmönnum fyrir góða samvinnu, svo og félagsmönnum fyrir þátt-
töku í félagsstarfinu. Félagið er fyrst og fremst fræðafélag fyrir alla lögfræðinga
og þar með sameiginlegur vettvangur þeirra. Þar sameinast lögfræðingar og
halda allsherjarþing sitt. Erla S. Árnadóttir gefur ekki kost á sér til endurkjörs í
næstu stjórn. Hún hefur unnið mikið starf af sérstakri kostgæfni og komið
málefnum tímaritsins í góðan farveg. Aðrir stjórnarmenn þakka henni fyrir
störfin og góða samvinnu. „ ^ .
6 6 Garðar Gislason
149