Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Blaðsíða 10
Samkvæmt 20. gr. bókunar 5 við ESE-samninginn, um stofnsamþykkt EFTA-
dómstólsins, ber að tilkynna ríkisstjórnum EFTA-rfkjanna, ESA, Evrópu-
sambandinu, þ.m.t. ríkisstjórnum allra EB-ríkja, og framkvæmdastjóm EB, um
mál sem lögð eru fyrir dómstólinn. Samkvæmt ákvæðinu geta allir framan-
greindir aðilar og stofnanir komið að greinargerðum eða skriflegum athuga-
semdum þar sem þeir lýsa afstöðu sinni til þeirra mála sem til meðferðar eru.
2. Málsmeðferð
Málsmeðferðarreglur fyrir EFTA-dómstólinn eru í aðalatriðum samdar með
málsmeðferðarreglur EB-dómstólsins sem fyrirmynd. Akvæði um málsmeðferð
fyrir EFTA-dómstólnum eru í III. hluta stofnsamþykktar EFTA-dómstólsins (bók-
un 5 við ESE-samninginn).8 Nánari reglur um málsmeðferð og réttarfar er að finna
í H. og III. hluta í starfsreglum EFTA-dómstólsins.9 í n. hluta starfsreglnanna eru
ítarlegar reglur um skriflega og munnlega málsmeðferð, en öll mál fyrir dómstóln-
um sæta bæði skriflegri og munnlegri málsmeðferð, nema sérstaklega sé kveðið á
um frávik frá þeirri meginreglu. Þá er í 3. kafla II. hluta fjallað sérstaklega um ráð-
stafanir varðandi málsmeðferð og gagnaöflun sem dómstóllinn kveður á um, ann-
að hvort eftir kröfu aðila eða að eigin frumkvæði. Er tilgangur ákvæðanna að
tryggja að mál séu sem best undirbúin undir munnlegan flutning og getur dómstóll-
inn á hvaða stigi skriflegrar málsmeðferðar sem er kveðið á um þær ráðstafanir sem
þurfa þykir. Þá getur dómstóllinn, að eigin frumkvæði eða að beiðni aðila, kallað
vitni fyrir dóminn vegna sönnunaratriða og ákveðið að leita álits sérfræðinga.
Rekstur hvers máls fer annars nokkuð eftir eðli þess. I málum þar sem
ráðgefandi álits er leitað eru það lagaatriði sem lúta að EES-rétti sem koma til
umfjöllunar en ekki reynir að sama skapi á sönnunarfærslu sem miðar að því að
leiða staðreyndir máls í ljós.10 Mál sem höfðuð eru samkvæmt 36. gr. ESE-
samningsins til ógildingar á ákvörðunum Eftirlitsstofnunar EFTA snúast um
8 Sjá íslenska þýðingu stofnsamþykktarinnar, EES-viðbætir við stjómartíðindi EB nr. 55, 31.
desember 1994 [94/EES/55/01 ], bókun 5, bls. 65.
9 Starfsreglur EFTA-dómstólsins voru samþykktar af dómstólnum 4. janúar og 1. febrúar 1994
og síðan staðfestar af EFTA-ríkjunum. Reglurnar eru birtar í íslenskri þýðingu í EES-viðbæti
við Stjómartíðindi EB nr. 40, 27. október 1994 [94/EES/40/01]. Þeim var breytt vegna inn-
göngu AustumTcis, Finnlands og Svíþjóðar í Evrópusambandið, en þeim breytingum var aðeins
ætlað að gilda tímabundið og skipta ekki máli lengur, sbr. 1. mgr. 2. gr. breytinga á starfsreglum
EFTA-dómstólsins frá 9. janúar 1995. Þessar breytingar eru birtar í EES-viðbæti við stjórnar-
tíðindi EB nr. 6, 2. mars 1995 [95/EES/6/02]. Þann 22. ágúst 1996 samþykkti dómstólinn
breytingar á starfsreglum sínum. Þær breytingar hafa ekki verið birtar þegar þetta er ritað.
10 í 7. kafla III. hluta starfsreglna EFTA-dómstólsins eru sérákvæði um rekstur þessara mála
og eru þær til fyllingar öðrum málsmeðferðarreglum. Það er hlutverk EFTA-dómstólsins að
túlka ákvæði EES-samningsins, annarra samninga, sem eru honum til fyllingar, sem og af-
leidds réttar innan EES-svæðisins, en ekki að skera úr réttarágreiningi sem er fyrir dómstólum
aðildarríkjanna. Sjá greinargerð um málsmeðferð fyrir EFTA-dómstólnum í málum þar sem
ráðgefandi álits. er leitað fyrmefnda grein Davíðs Þórs Björgvinssonar, „Ráðgefandi álit
EFTA-dómstólsins”, sjá hér að framan nmgr. 7, einkum bls. 149 o.áfr.
146