Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Blaðsíða 20

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Blaðsíða 20
landsréttar.-7 í Finnlandi hafði 16. gr. EES-samningins verið lögleidd rétt eins og önnur ákvæði samningins. Hún hafði því sömu stöðu og hver önnur lög þar í landi. Ákvæðið var hins vegar talið andstætt öðrum ákvæðum finnskra laga sem gerðu ráð fyrir einkaleyfi á innflutningi áfengis. Þess vegna þurfti áfrýjunarnefndin að vita hvort 16. gr. væri nægilega skýr og óskilyrt. Það var grundvöllur þess að hún gæti metið hvort 16. gr. ætti samkvæmt finnskum lögunr að hafa forgang fram yfir aðrar reglur. í dómi EFTA-dómstólsins var talið að í bókun 35 við EES-samninginn fælist krafa um að EFTA-ríki tryggðu þeim reglum forgang sem væru nægilega skýrar og óskilyrtar. Dómstóllinn er því í raun að skýra ákvæði bókunarinnar og hvort bókunin taki til 16. gr. Er svo talið. í því efni er höfð hliðsjón af dómum EB-dómstólsins.28 2. Dómur 21. mars 1995 (Mál E-2/94) (Laxamál) 2.1 Inngangur Þann 28. apríl 1994 höfðuðu Samtök skoskra laxeldisstöðva (Scottish Salmon Growers Association Limited (SSGA)) mál fyrir EFTA-dómstólnum og kröfð- ust ógildingar á tiltekinni ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Hér reyndi í fyrsta sinn á lögsögu EFTA-dómstólsins til að endurskoða ákvarðanir ESA, svo sem mælt er fyrir um í 108. gr. EES-samningsins. Nánar tiltekið reyndi hér á skýringu 36. gr. ESE-samningsins, sem fjallar um málsmeðferð sambærilega þeirri sem 173. gr. Rs. lýsir, til ógildingar á ákvörðunum framkvæmdastjórnar EB eða EB-ráðsins. 2.2 Atvik málsins og kröfur aðila Samtökin SSGA kvörtuðu til ESA yfir meintum ríkisstyrkjum Noregs til laxeldis þar í landi. Af hálfu ESA var umleitun samtakanna svarað með bréfi dagsettu 24. mars 1994. Sagði þar að kvörtun samtakanna hefði borist stofnun- inni, en þar sem hún væri, samkvæmt ákvæðum EES-samningsins ekki bær til að tjalla um ríkisstyrki í sjávarútvegi (fisheries) hygðist stofnunin ekki aðhafast frekar í málinu og ljúka meðferð þess. Samtökin báru synjun ESA á meðferð málsins undir EFTA-dómstólinn og kröfðust þess að sú ákvörðun sem fælist í framangreindu bréfi yrði ógilt. Byggðu samtökin á því að eftirlitsstofnunin væri ekki aðeins bær til að fjalla um ríkisstyrki í sjávarútvegi heldur væri hún jafnframt eina stofnunin sem væri bær til að fjalla um kvörtun þeirra. Synjun ESA jafngilti því synjun um réttláta máls- meðferð. Þá væru formgallar á ákvörðuninni sem leiða ættu til ógildingar hennar, en ákvörðunin væri órökstudd, eða rökstuðningi a.m.k. verulega ábótavant. ESA krafðist þess aðallega að málinu yrði vísað frá. Var sú krafa byggð á eftirfarandi sjónarmiðum. í fyrsta lagi að ekki hefði verið um að ræða formlega 27 Lög 1504 11. desember 1992, sbr. lög 1505/1992, sjá Davíð Þór Björgvinsson: „Tengsl EES-réttar og landsréttar”, bls. 149. 28 Dómurinn er einnig reifaður í Common Markert Law Reports, 72(4) 1995, bls. 161-184. 156
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.