Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Blaðsíða 65

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Blaðsíða 65
eiga sameiginlega, og draga fram hvaða gagn hvor aðili hafi af samkomulagi. Mér lærðist að leita sjálfstæðra og sanngjarnra mælikvarða, svo að báðir aðilar næðu fram því, sem þeim bæri, um leið og þeir gætu haldið fullri reisn. Þá verður að leggja sérstaka áherslu á, að nauðsynlegt er að dómarar kynni sér málin rækilega, sérstaklega lagalega stöðu þeirra, áður en þeir hefja sættir. Með því móti reynast sáttastörf til muna léttari. Á fyrsta fundi með lögmönnum var farið yfir stöðu mála og möguleika til sátta. Ef ljóst var þá þegar, að enginn kostur var á sáttum, t.d. vegna þess að um var að ræða svokölluð prinsipmál eða ágreiningsmál um ósættanleg lagaatriði, voru frekari sáttatilraunir ekki reyndar. Ef sættir voru hugsanlegar, var gott að ræða málin og gera sér grein fyrir hagsmunum aðila í málinu. Sóknaraðila gat t.d. verið mikilvægt að fá vissu um kröfu sína og að hún yrði greidd fljótt. Hins vegar gat vamaraðila verið mikilvægt að fá gjaldfrest. Aðilar slaka gjaman á ýmsum kröfum til að ná hagsmunum sínum fram. Nauðsynlegt er að dómarinn viti, hvað hann ætlar sér og jafnframt að hann sé opinn fyrir nýjum hugmynd- um, þ.e. að finna úrræði sem samræmast þeim hagsmunum, sem fyrir liggja. Honum má vera Ijóst, að aðilar hafa ekki gert upp við sig, að hverju þeir vilja ganga og hann skyldi því leita leiða, sem báðum aðilum eru til hagsbóta. Nauðsynlegt er að skoða málið frá ýmsum sjónarmiðum og greina valkosti eftir að ljóst liggur fyrir, hverju hvor aðili um sig hefur áhuga á. Oft gerði ég sem dómari ákveðna tillögu á þessu stigi, en tók jafnframt fram, að tillagan hefði ekkert með endanlegan dóm að gera, þ.e. dómarinn verður að taka skýrt fram, að dómsúrlausn málsins verði byggð á allt öðrum grunni og því geti málið dæmst öðruvísi. Sérstaklega er gott að ítreka, að hversu vissir sem aðilar telja sig um málstað sinn og lagarök, geti mál alltaf tapast. Á fyrsta fundi komust lögmenn og dómari oft að þeirri niðurstöðu, að rétt væri að ná málsaðilum saman á sáttafund. Reyndist það oft afbragðsráð, þar sem dómari málsins fékk þá tækifæri til að segja málsaðilum ýmislegt, sem lögmenn höfðu e.t.v. sagt þeim, en það fékk meiri staðfestu, þegar það kom einnig frá dómaranum. Sumir lögmenn eiga erfitt með að skýra nógu skorinort frá neikvæðum hliðum málstaðar umbjóðenda sinna og það er þægilegra fyrir lögmennina, að dómarinn geri það. Sumir lögmenn telja sig eiga ella á hættu, að vera sakaðir um linku gagnvart mótaðila eða ekki næga hollustu við sinn umbjóðanda. Þeir vilja ekki styggja sinn viðskiptavin. Ef t.d. viðskiptavinurinn er stór, málið er lítilvægt og illt er á milli deiluaðila, getur verið að lögmaður telji áhættuminnst að láta málið hafa sinn gang og fá dóm í því, fremur en að eyða tíma og orku í sættir eða að skýra umbjóðanda sínum frá veikum hliðum í málstað hans. Lögmanninum er þá þægð í því, að dómarinn segi viðskipta- vininum, að hann hafi góðan og kröfuharðan lögmann, en því miður séu á mál- inu veikar hliðar, sem beri að athuga. 201
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.