Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Blaðsíða 15

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Blaðsíða 15
Niðurstaða dómsins er sú, að öllum atriðum virtum, að áfrýjunamefndin sé þrátt fyrir allt, í reynd og að lögum, sjálfstæð og hlutlaus stofnun. Þótt hún sýnist nátengd yfirstjórn tollamála18 sé henni veitt sjálfstæði sem gera verði ráð fyrir að hún njóti í reynd og málsmeðferðin fyrir henni beri öll einkenni máls- meðferðar fyrir dómstólum. I því sambandi, og með vísan til áðurgreindra atvika, er í dóminum sérstaklega bent á að áfrýjunarnefndin og þeir sem þar eigi sæti hafi hvorki afskipti af ákvörðunum héraðstollyfirvalda í einstökum málum né af því hvort máli er skotið til æðsta stjórnsýsludómstólsins. Nefndin sé óháð aðilum í ágreiningsmálum sem fyrir hana era lögð og héraðstollyfirvöldum. Af þessu leiðir, að áliti dómsins, að ekki sé slíkt stjórnsýslusamband milli áfrýj- unamefndarinnar og ríkistollstjómarinnar að það útiloki að litið sé á nefndina sem dómstól eða rétt í skilningi 34. gr. ESE-samningsins. Með hliðsjón af þessu og með það í huga að tilgangur með ráðgefandi álitum sé að koma á sérstöku samstarfi milli EFTA-dómstólsins og dómstóla aðildar- ríkja í því skyni að aðstoða þá síðamefndu við beitingu EES-réttar þar sem það eigi við, taldi dómurinn að beiðni áfrýjunamefndarinnar um ráðgefandi álit væri tæk til efnismeðferðar. b. Athugasemdir um skýringu á EES-samningnum í upphafi dóms um efnishlið málsins eru sérstaklega áréttuð þau sjónarmið sem talið er að hafa verði í huga við skýringu einstakra ákvæða EES-samningsins. Þar er sérstaklega vísað til 4. og 5. málsgreinar aðfaraorða samningsins og áhersla lögð á að haga beri skýringum einstakra ákvæða til samræmis við þessi aðfaraorð. I 4. mgr. lýsa samningsaðilar yfir því að þeir hafi sérstaklega í huga það markmið að mynda öflugt og einsleitt efnahagssvæði er grundvallist á sameiginlegum reglum og sömu samkeppnisskilyrðum, tryggri framkvæmd, meðal annars fyrir dómstólum, og jafnrétti, gagnkvæmni og heildaijafnvægi hagsbóta, réttinda og skyldna samningsaðila. Þá kemur fram í 5. mgr. að samningsaðilar hafi einsett sér að beita sér fyrir því að frelsi til vömflutninga, fólksflutninga, þjónustustarfsemi og fjármagnsflutninga verði sem víðtækast á öllu Evrópska efnahagssvæðinu, svo og að styrkja og auka samvinnu í jaðarmálum og tengdum málum. Hér er ljóst að dómurinn hneigist til að beita svokallaðri markmiðstúlkun við skýringu einstakra ákvæða samningsins. Með því er átt við að lögð sé áhersla á að skýra og túlka einstök ákvæði samningsins þannig að markmiðum hans verði sem best náð.19 Það vekur þó athygli að tilvitnuð orð í dóminum eru mjög almenns eðlis og vísa eftir orðalagi sínu til ákvæða samningsins í heild, en ekki aðeins til 11. og 16. gr. Má því segja að dómstóllinn gefi hér mjög almennar og mikilvægar leiðbeiningar um aðferðir við skýringar á ákvæðum EES-samningsins. 18 Þau stjómsýslutengsl sem hér er vísað til em þau að samkvæmt finnskum lögum er áfrýjun- amefnd tollyfirvalda hluti af tollstjóm finnska ríkisins. Þá var sérstaklega höfð í huga sú stað- reynd að formaður áfrýjunarnefndarinnar er jafnframt æðsti yfirmaður tollstjómarinnar, auk þess sem aðrir nteðlimir áfrýjunamefndarinnar eru jafnframt starfsmenn tollstjómarinnar. 19 Sjá nánar um túlkunaraðferðir í EB-rétti: Stefán Már Stefánsson: Evrópuréttur, Reykja- vík 1991, bls. 216-220; Davíð Þór Björgvinsson: Lögskýringar (fjölrit) 1995, bls. 168-172. 151
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.