Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Blaðsíða 33
sem svipar til mála Mattel og Lego fyrir EFTA-dómstólnum. Þar er spurt að því
hvort 30. gr. og 59. gr. Rs. og ákvæði sjónvarpstilskipunarinnar 89/552 EBE
komi í veg fyrir að samningsríki bregðist við auglýsingum sem auglýsandi
lætur sjónvarpa frá öðru samningsríki, sem og því hvort þessar sömu
réttarheimildir EB-réttarins komi í veg fyrir að sænsk löggjöf banni auglýsingar
fyrir böm.41 Hefur norska ríkisstjómin m.a. nýtt sér sambærilega heimild við
heimild 20. gr. ESE-samningsins til að koma að athugasemdum við þetta mál
fyrir EB-dómstólnum. Frá sjónarhóli EFTA-dómstólsins verður m.a. fróðlegt
að sjá hvort og að hvaða marki EB-dómstóllinn mun líta til Mattel og Lego
málsins við úrlausn málsins.
Þann 17. september 1996 varbirt álit lögsögumanns í þessum málum. í álitinu
nefnir lögsögumaðurinn, Jacobs, dóm EFTA-dómstólsins í sameinuðum mál-
um E-8 og 9/94, og nefnir að EFTA-dómstóllinn hafi þar komist að sömu
niðurstöðu um skýringu sjónvarpstilskipunarinnar og hann leggur til í áliti sínu.
Niðurstaða Jacobs um tilskipun 84/450/EBE, um villandi auglýsingar, er á hinn
bóginn sú að sjónvarpstilskipunin standi því í vegi að aðildarríki takmarki
útsendingar til yfirráðasvæðis síns með vísan til löggjafar sem sett sé vegna til-
skipunar 84/450/EBE. Lögsögumaðurinn tekur fram, að þar sem fjallað sé um
þetta álitaefni í dómi EFTA-dómstólsins sé greinilega um hugleiðingar að ræða
sem ekki séu bindandi (obiter dictum) og ljóst sé af málflutningsskýrslunni að
aðilar málsins hafi ekki haldið fram ákveðnum sjónarmiðum eða rökum eða
flutt málið að því er þetta varðar.
4. Dómur 20. júní 1995 (mál E-l/95) Samuelson
4.1 Inngangur
Þann 20. júní 1995 sendi EFTA-dómstóllinn frá sér ráðgefandi álit sem laut
að álitaefnum um túlkun á ákvæðum tilskipunar EB um vernd launþega við
gjaldþrot vinnuveitanda (80/987/EBE). Samkvæmt þeim skuldbindingum sem
felast í EES-samningnum ber aðildarríkjum hans að taka tillit til þessarar
tilskipunar í löggjöf sinni.42
41 Mál C-34/95, Konsumentombudsmannen v De Agostini (Svenska) AB, og mál C-35/95 og
C-36/95, Konsumentombudsmannen v TV-Shop i Sverige AB. Sjá tilkynningu um þessi mál í
Official Joumal of the European Communities No C 101 (22. apríl 1995), bls. 2: References
for preliminary ruling from the Marknadsdomstolen by three decisions of that court of 7
February 1995 in the case of Konsumentombudsmannen v De Agostini (Svenska) Förlag AB
and in the cases of Konsumentombudsmannen v TV-Shop i Sverige AB. Sænski markaðs-
dómstóllinn hafði áður sent beiðni um ráðgefandi álit í þessum málum til EFTA-dómstólsins,
en afturkallaði þá beiðni eftir inngöngu Svíþjóðar í ESB. Málin, sem voru nr. E-4/94 og E-
5/94 hjá EFTA-dómstólnum, vom tekin af málaskrá dómstólsins 27. febrúar 1995.
42 Til tilskipunarinnar er vísað í XVIII. Viðauka (24. tl.) við EES-samninginn, sbr. 68. gr.
þess samnings.
169