Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Blaðsíða 80
Rainer Voss lét nú af störfum sem forseti samtakanna eftir tveggja ára setu og
var Rodriguez Arribas frá Spáni kjörinn í hans stað til tveggja ára. Ekki er vitað
með vissu hvar næsta þing verður haldið, en líklegt þó, að það verði í Puerto
Rico.
Evrópudeild Alþjóðasambands dómara boðaði til fundar þann 27. apríl sl. í
Bratislava. Ólöf Pétursdóttir sótti fundinn en á dagskrá hans var samstarf
félagsins við Evrópusambandið og staða þess innan Alþjóðasambands dómara.
SEND (Samarbetsorganet för efterutbildning av nordiska domare)
I tengslum við norræna lögfræðingaþingið í Svíþjóð var fundur í stjórn SEND
og sótti Garðar Gíslason þann fund.
Þar var fjallað um undirbúning málþings í Jönköping í Svíþjóð dagana 5.-7.
febrúar 1997, þar sem fjallað verður um meðferð mála á áfrýjunarstigi.
Þá mun verða haldið málþing í Þrándheimi dagana 3.-5. september 1997 þar
sem fjallað verður um málsmeðferð í héraði í einkamálum.
Stjórn Dómarafélags Danmerkur sendi boð um þátttöku á dómaraþingi þar í
landi sem haldið var 4.-5. október 1996.
Allan Vagn Magnússon sótti þingið fyrir hönd Dómarafélags Islands.
Aðalefni þingsins var umræða um nefndarálit sem borist hefur frá nefnd sem
skipuð var til þess að fjalla um ýmis atriði er snerta dómstólakerfið í Danmörku.
Megintillögur nefndarinnar sem allar hafa það að markmiði að styrkja stöðu
dómstólanna sem eins þriggja þátta ríkisvaldsins og að tryggja traust borgar-
anna til dómstólanna eru þessar:
að sjálfstæðri dómstólstjórn verði komið á til þess að annast málefni er
snerta fjárveitingar og stjómsýslu dómstólanna,
að dómarar komi úr hópi sem hafi fjölþættari reynslu en nú er,
að komið verði á fót nefnd eða ráði sem geri tillögur til ráðherra þess er fer
með veitingarvald um veitingu dómaraembættis,
að skipaðir dómarar fari með fleiri mál,
að settar verði reglur sem tryggi persónulegt sjálfstæði settra dómara og
að settar verði frekari reglur um aukastörf dómara og að dómurum verði
gert að gera grein fyrir aukastörfum sínum.
Allan Vagn Magnússon, Freyr Ófeigsson, Friðgeir Bjömsson og Markús
Sigurbjömsson þáðu boð EFTA-dómstólsins í Luxembourg dagana 25. og 26.
september sl., kynntu sér starfsemi hans og heimsóttu einnig Evrópudómstólinn.
Dagana 24. til 28. júní var Lars Ryhave formaður danska dómarafélagsins í
heimsókn hér á landi. Hann átti fund með talsmönnum réttarfarsnenfndar og
hitti stjórnarmenn að máli.
216