Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Síða 14

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Síða 14
3.4 Áhrifasvæði samkeppnisreglna Það gildir um samkeppnisreglur eins og aðrar lagareglur að þær eiga einungis að hafa áhrif á tilteknu svæði eða á tiltekin viðskipti. Samkeppnislögin nr. 8/1993 gilda t.a.m. aðeins um viðskipti sem ætlað er að hafa áhrif á íslandi, sbr. 1. mgr. 3. gr. laganna. Samkeppnisreglur ESB gilda með sama hætti aðeins innan hins sameiginlega markaðar að svo miklu leyti sem viðskiptin hafa áhrif á milliríkjaviðskipti aðildarríkjanna. Þetta leiðir til þess að innan hvers af aðildarríkjunum gilda sérstakar samkeppnisreglur sem ná til viðskipta sem ekki teljast milliríkjaviðskipti. Sérstök vandamál skapast hins vegar þegar ákvörðun sem tekin er í landi utan ESB hefur bein samkeppnishamlandi áhrif á hinum sameiginlega markaði ESB. Undir slíkum kringumstæðum koma til skoðunar svokölluð framlengingaráhrif (e. extra-territorial reach) samkeppnislaga, þ.e. lögin eru látin ná til aðila sem eru utan lögsögu viðkomandi ríkis og er þá eftir atvikum með hvaða hætti viðurlög ná fram að ganga.21 4. HVAÐ ER MISNOTKUN? 4.1 Hugtakið Þess var getið hér að ofan að skilyrði fyrir beitingu 1. mgr. 86. gr. Rs. er að fyrirtæki hafi markaðsyfirráð. Slík yfirráð á markaðinum eru í sjálfu sér ekki brot á ákvæðum 86. gr. Það sem reglan bannar er hins vegar misnotkun á þessari markaðsráðandi stöðu. Þetta má augljóslega leiða af orðalagi 1. mgr. greinar- innar sem hefur verið staðfest af Evrópudómstólnum, sbr. t.d. málið Michelin gegn framkvæmdastjórn ESB22 en þar sagði: A finding that an undertaking has a dominant position is not in itself a recrimination (reproach) but simply means that, irrespective of the reasons for which it has such a dominant position, ihe undertaking concerned has special responsibility not to allow its conduct to impair genuine undisturbed competition on the common market.23 Vandamálið eftir að komist hefur verið að þeiiri niðurstöðu að fyrirtæki hafi markaðsráðandi aðstöðu er að ákvarða hvort athafnir fyrirtækisins feli í sér misnotkun eða ekki. Aðgreining á milli leyfilegrar og óleyfilegrar hegðunar samkvæmt 86. gr. er því grundvölluð á réttum skilningi á misnotkunarhugtak- inu. Enga beina skilgreiningu á hugtakinu er að finna í Rómarsamningnum, en í 2. mgr. 86. gr. eru hins vegar nefnd nokkur dæmigerð tilvik um misnotkun. Sú 21 Um þetta efni vísast að öðru leyti til fræðirita á sviði samkeppnisréttar, t.d. Richard Whish, Competition Law, (1993) Butterworths, London, bls. 370. 22 Michelin gegn framkvæmdastjórn ESB (1983) ECR 3461; (1985) 1 CMLR 282. 23 Michelin gegn framkvæmdastjóm ESB (1983) ECR 3461; (1985) 1 CMLR 282. 70
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.