Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Blaðsíða 45

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Blaðsíða 45
4. GILDISSVIÐ HINNAR ALMENNU JAFNRÆÐISREGLU 65. GR. STJÓRNARSKRÁRINNAR 4.1 Ríkisvaldið Mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar er almennt ætlað að vera vöm almennings í samskiptum við þá sem fara með ríkisvald.16 I því felst að sjálf- sögðu gífurlega mikilvæg vísbending um gildissvið mannréttindaákvæðanna. Hins vegar geta sterkar vísbendingar í andstæða átt valdið vafa um gildissvið einstakra ákvæða, þannig að ekki verði ályktað með neinu öryggi að þau eigi með sama hætti við um öll svið ríkisvaldsins, þ.e. löggjafarvald, dómsvald og framkvæmdavald. Þegar litið er á jafnræðisregluna kemur í ljós að ummæli greinargerðar sem sérstaklega varða 3. gr. frumvarpsins eða hina almennu jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar eru takmörkuð við beitingu hennar um lög- gjafarvaldið.17 Hið eina sem greinargerðin nefnir og getur falið í sér að gildis- svið hennar nái út fyrir löggjafarvaldið er það þegar talað er um hlutverk jafnræðisreglunnar sem leiðbeiningarreglu við skýringu laga en dómsvald og framkvæmdavald skýra og beita lögum í réttarframkvæmd.18 Ekki er einu orði vikið að þeim möguleika að reglunni verði beitt sem efnisreglu um meðferð framkvæmdavaldsins eða dómsvaldsins. Þær alþjóðlegu skuldbindingar sem einkum er vísað til í greinargerð og eru því greinilega helstu fyrirmyndir hinnar almennu jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar eru 14. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu og 26. gr. Alþjóða- samnings um borgaraleg og stjómmálaleg réttindi.19 Það er lögskýringarregla að íslensk lög eigi að túlka með hliðsjón af alþjóðalögum en landslög gangi þó framar séu þau ósamrýmanleg.20 Þá er það mikilvægt lögskýringarsjónarmið að lögskýringu eigi að haga þannig að tilgangi laga verði sem best náð.21 Eins og áður var greint þá var tilgangur stjómarskrárbreytinganna m.a. sá að endur- skoða mannréttindaákvæðin með tilliti til þeirra alþjóðlegu skuldbindinga sem 16 Sjá greinargerð, bls. 12. 17 Greinargerð fjallar um jafnræðisregluna sem almenna leiðbeiningarreglu sem eigi við um lagasetningu og það álitaefni ef lög brjóta í bága við hana, sbr. bls. 16. A bls. 17 segir að reglunni sé ætlað að gilda á öllum sviðum löggjafar og veita öllum jafna lagavernd. Loks er á bls. 18 útskýrt að réttlætanlegt kunni að vera að gera ákveðnum hópum hærra undir höfði en öðrum í löggjöf og að lögákveðin skilyrði geti tekið mið af tilteknum atriðum. 18 Greinargerð, bls. 16. 19 Sjá greinargerð, bls. 16-18. Mannréttindasáttmáli Evrópu, ásamt viðaukum 1-8, í íslenskri þýðingu er birtur í Alþjóðlegir mannréttindasáttmálar: Reykjavík, 1992, bls. 13-40. Alþjóðasamningur um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, ásamt valfrjálsri bókun og annarri valfrjálsri bókun, í íslenskri þýðingu er birtur í Alþjóðlegir mannréttindasáttmálar: Reykjavík, 1992, bls. 71-98. 20 Sjá t.d. greinargerð, bls. 11. 21 Sjá Ármann Snævarr: Almenn lögfræði, Reykjavík 1988, bls. 404. 101
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.