Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Blaðsíða 37

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Blaðsíða 37
reglugerð frá Ráðherraráðinu varðandi samruna sem gefin var út 21. desember 1989.115 Reglugerð þessi gildir um allar tegundir samruna þannig að 86. gr. Rs. hefur takmarkað gildi varðandi samruna félaga á þessari stundu.116 Það er þó rétt til upplýsingar að benda á að í máli Tetra Pack Rausing gegn fram- kvæmdastjórn ESB (Tetra Pack I)117 reyndi á það hvort kaup á fyrirtæki sem átti einkaleyfi sem samkeppnisaðili notaði bryti gegn 86. gr. Rs. Evrópudóm- stóllinn komst að þeirri niðurstöðu að kaupin sem slík væru ekki misnotkun á aðstöðu, en hins vegar mátti draga þær ályktanir af háttsemi Tetra Pak að um misnotkun á aðstöðu væri að ræða. 6.8 Skylda tii að veita upplýsingar Það er álitamál hvort markaðsráðandi fyrirtæki ber að veita samkeppnis- aðilum upplýsingar um breytingar á framleiðsluvörum sínum. Þetta vandamál kom upp í máli IBM gegn framkvæmdastjórn ESB118 þar sem því var haldið fram að IBM hefði brotið gegn 86. gr. Rs. með því að neita að upplýsa hvenær ný framleiðslulína kæmi á markaðinn og ennfremur að upplýsingar um þetta kæmu of seint. Þar sem sættir náðust í málinu var þetta atriði ekki upplýst. 7. LOKAORÐ I grein þessari er fjallað um flesta þá dóma og úrskurði er gengið hafa á grundvelli 86. gr. Rs. Hér er um mjög fjölskrúðuga flóru að ræða og við þessa flóru bætast ný mál á hverju ári. Fyrir íslenska lögfræðinga er að sjálfsögðu nauðsynlegt að fylgjast með þessari þróun, a.m.k. þá sem sinna samkeppnis- málum. Það verður að telja óumdeilanlegt að dómar þessir og úrskurðir hafa að meira eða minna leyti fullt fordæmisgildi hér á landi. Þetta stafar m.a. af tvennu. I fyrsta lagi er að finna í íslenskum lögum reglu samhljóða 86. gr. Rs., það er að segja 54. gr. Samningsins um evrópska efnahagssvæðið og samkvæmt reglum um altæka aðlögun gilda dómar Evrópudómstólsins á svæðinu. I öðru lagi eru íslenskar samkeppnisreglur að stofni til byggðar á evrópskum reglum á þessu sviði. Það er því fyrirsjáanlegt að framangreindum sjónarmiðum verði beitt fullum fetum fyrir íslenskum dómstólum. 115 Reglugerð (e. Council Regulation) nr. 4064/1989 116 Á það hefur hins vegar verið bent að hægt sé að beita 86. gr. Rs. fyrir sig í samrunamálum sem rekin eru fyrir dómstólum aðildarríkja ESB, sbr. Richard Whish, Competition Law, (1993) Butterworths, London, bls. 704. 117 Tetra Pack Rausing gegn framkvæmdastjórn ESB [1991] 4 CMLR 334; [1990] ECR II 309. 118 IBM gegn framkvæmdastjórn ESB [1981] ECR 2639; 3 CMLR 635. GVL [1981] 1 CMLR 221 93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.