Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Blaðsíða 28

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Blaðsíða 28
ráðandi fyrirtæki.71 Á grundvelli þessara forsendna rannsakaði dómstóllinn framleiðslukostnað hjá AKZO. Niðurstaðan varð sú að verðlagning á vörum sem fyrirtækið bauð viðskiptavinum samkeppnisaðilans var í flestum tilvikum undir framleiðslukostnaði og í sumum tilvikum einnig lægri en breytilegur kostnaður við framleiðslu þeirra. Dómurinn taldi því að AKZO hefði boðið vörur á óeðlilega lágu verði með það að markmiði að skaða stöðu samkeppnis- aðila og þannig brotið gegn 86. gr. Rs. Annað mál er varðaði undirboð er Tetra Pak II72 þar sem framkvæmdastjórn ESB sagði að Tetra Pak hefði brotið gegn 86. gr. Rs. með undirboðum á markaðinum. I íslenskum samkeppnisrétti reyndi á undirboð í máli varðandi kvörtun vegna viðskiptahátta Bónuss sf. og Baugs hf.73 Kvörtunin beindist m.a. að því að Bónus sf. seldi vörur undir sannanlegu kostnaðarverði. Samkeppnisráð sagði um þetta að markmið samkeppnislaga væri að efla virka samkeppni en ekki að vernda fyrirtæki gegn þeim skaða sem heiðarleg samkeppni kynni að valda þeim. Undirverðlagning væri því ekki skaðleg nema markmið hennar væri að skaða aðila á markaðinum til að draga úr samkeppni. Taldi Samkeppnisráð að ekkert hefði komið fram um að virk samkeppni á markaðinum hefði verið hindruð né slíkt hefði verið markmið fyrirtækjanna Baugs hf. eða Bónuss sf. Þá sagði að eitt af meginmarkmiðum samkeppnislaga væri að lækka vöruverð og þyrftu því að liggja frammi óyggjandi gögn áður en samkeppnislögum væri beitt til að hækka vöruverð fyrirtækja. Niðurstaða Samkeppnisráðs varð því sú að ekkert hefði komið fram sem benti til samkeppnisbrota af hálfu Baugs hf. né eigenda fyrirtækisins. 6.3.4 Kaup undir kostnaðarverði Annað álitaefni tengt undirboðum er þegar markaðsráðandi fyrirtæki knýr fram lækkað vöruverð á aðföngum í krafti stærðar sinnar á markaðinum. Á þetta hefur ekki reynt í rétti ESB en á þetta reyndi m.a. í rnáli varðandi kvörtun vegna viðskiptahátta Bónuss sf. og Baugs hf.74 Kvörtunin beindist m.a. að því að Baugur hf. hefði í krafti markaðsaðstöðu knúið fram óeðlilega hagkvæm viðskiptakjör gagnvart birgjum sínum. Samkeppnisráð kannaði viðskiptakjör nokkurra birgja gagnvart Baugi hf. og komst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið nyti afsláttar í samræmi við þá framlegð sem birgjar hefðu af viðskiptum við 71 Ibid §§ 70-72. 72 Tetra Pak II [1992] 4 CMLR 551. 73 Kvartanir vegna viðskiptahátta Bónuss sf. og Baugs hf., ákvörðun Samkeppnisráðs nr. 7/1995, óbirt en úrdráttur úr ákvörðuninni birtist í Samkeppní, fréttabréfi Samkeppnis- stofnunar, nr. 19, mars 1995. 74 Kvartanir vegna viðskiptahátta Bónuss sf. og Baugs hf., ákvörðun Samkeppnisráðs nr. 7/1995, óbirt en úrdráttur úr ákvörðuninni birtist í Samkeppni, fréttabréfi Samkeppnis- stofnunar, nr. 19, mars 1995. 84
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.