Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Blaðsíða 57

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Blaðsíða 57
felur í sér efnislega kröfu um jafnrétti.53 Inntak hugtaksins „sömu lagavernd“ í 26. gr. alþjóðasamningsins felur bæði í sér neikvæða og jákvæða efnislega kröfu til ríkisvaldsins. Hin neikvæða fjallar um það sem þessi tímaritsgrein er takmörkuð við, þ.e. spuminguna um það hvort ríkisvaldinu sé sjálfu óheimilt að mismuna í því sem það tekur sér fyrir hendur. Hin jákvæða krafa til ríkisvalds- ins sem talin er felast í 26. gr. alþjóðasamningsins fjallar um það að ríkisvaldinu sé skylt að hefjast handa um að grípa til viðeigandi aðgerða til þess að tryggja jafnræði og vernda gegn mismunun í þjóðfélaginu.54 Þar sem 65. gr. stjómarskrárinnar er svo greinilega ætlað að vera efnisleg mælistika á gildi laga er augljóst að henni er ekki ætlað að vera eingöngu form- leg regla svipuð hugtakinu „allir eru jafnir fyrir lögunum“ í 26. gr. Alþjóða- samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Það væri auk þess í hróplegu ósamræmi við hina annars víðtæku reglu 26. gr. alþjóðasamningsins, 14. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu og aðrar alþjóðlegar skuldbindingar íslands á sviði mannréttinda s.s. samning um afnám alls kynþáttamisréttis og samning um afnáms allrar mismununar gagnvart konum sem einnig er getið um í greinargerðinni.55 Samkvæmt þeim tilgangi stjórnarskrárbreytinganna að færa landsrétt að alþjóðlegum skuldbindingum rrkisins og með tilliti til þeirra lögskýringareglna að skýra beri lög til samræmis við tilgang þeirra og alþjóð- legar skuldbindingar ríkisins almennt væri óhugsandi að túlka jafnræðisregluna með þeim hætti að hún sé ekki í eðli sínu efnisregla sem feli í sér efnisleg réttindi. Síðast en ekki síst er vert að nefna þá athugasemd í greinargerð að: ... reglan er öðrum þræði stefnuyfirlýsing sem varasamt er að taka of bókstaflega án tillits til aðstæðna sem geta réttlætt eðlileg frávik frá þessu jafnræði fyrir lögunum.56 Málsgreinin sem þessi setning er tekin úr fjallar um það hvað bann við mis- munun felur í sér en ekki það hvort slíkt bann sé fyrir hendi í jafnræðisreglunni. Málsgreinin fjallar með öðrum orðum um það hvað beri að teljast nrismunun og hvað beri að teljast lögmætur greinarmunur milli tilvika og í henni eru nefnd dæmi um atvik sem teljast myndu heimill greinarmunur. Það er því alveg ljóst að ekki er hægt að draga neina ályktun af athugasemdinni um að reglan sé 53 Sjá Lord Lester of Herne Hill og Sarah Joseph: Obligations of Non-Discrimination í David Harris og Sarah Joseph (ritstj.): The International Covenant on Civil and Political Rights and United Kingdom Law, Clarendon Press, Oxford, 1995, bls. 566. 54 Sjá Manfred Nowak: U.N. Covenant on Civil and Political Rights CCPR Commentary, N.P. Engel Publisher, Kehl, 1993, bls. 469-479 þar sem hann fjallar um þessa tvo þætti sem felast í 26. gr. alþjóðasamningsins. 55 Greinargerð, bls. 17. 56 Greinargerð, bls. 17. 113
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.