Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Blaðsíða 74
Grundvallaratriði alþjóðlegs refsiréttar. Úlfljótur. Afmælisrit -50 ára-.
Úlfljótur, tímarit laganema 50 (1997), bls. 151-180.
Fyrirlestrar:
„What makes international criminal law so special?“ Fluttur 23. apríl 1996 á
málþingi um alþjóðlegan refsirétt í Róm.
„The sources of intemational criminal law with reference to the human rights
principles of domestic criminal law“. Fluttur 24. apríl 1996 á málþingi um
alþjóðlegan refsirétt í Róm.
Rannsóknir:
Vann að hinni nýju bók, Afbrot og refsiábyrgð. I fyrstu kemur ritið út í 3
fjölrituðum hlutum, alls um 380 bls. Fyrsti og annar hluti ritsins komu út 1994
og í 2. útgáfu 1995. Annar hlutinn hefur verið í frekari vinnslu að undanförnu
og verður fullunninn innan skamms. Þriðja hluta verksins mun ég reyna að
ljúka á yfirstandandi rannsóknarmisseri. Ætlunin er að gefa ritið út á prenti,
þegar allt meginmál bókarinnar er fullsamið.
Vann að rannsóknum og ritstörfum um ýmis efni í alþjóðlegum refsirétti, m.a.
að undirbúningi nýs rits um refsilögsögu og alþjóðlega réttaraðstoð í
sakamálum.
Vann að undirbúningi kennsluheftis á ensku um ýmis almenn og alþjóðleg
undirstöðuatriði refsiréttar, einkum í tengslum við námskeið fyrir erlenda
stúdenta.
Vann að samningu stuttrar yfirlitsritgerðar í kynningarrit á ensku um
íslenskan rétt.
Ritstjórn:
1 ritstjórn Nordisk Tidsskrift for Kriminalvidenskab.
I ritstjórn Scandinavian Studies in Law.
Skýrsla um ítalskt-íslenskt málþing í Róm 23.-24. apríl 1996 (ásamt Róbert
Spanó stud. jur.).
Páll Sigurðsson
Ritstörf:
Grágás-Lagasafn íslenska þjóðveldisins. Ritdómur um útgáfu Máls og
menningar. Úlfljótur, tímarit laganema 47 (1995), bls. 475-478.
Abyrgð á birtu prentefni að íslenskum lögum. Tímabært umræðuefni í
fjölmiðlarétti. Úlfljótur. Afmælisrit - 50 ára -. Úlfljótur, tímarit laganema 50
(1997), bls. 183-215.
Ferðafélagið og hálendið. Árbók Ferðafélags íslands 1996, bls. 245-248.
130