Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Blaðsíða 40

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Blaðsíða 40
í fyrri dómum sínum hafði Hæstiréttur hafnað því nota viðmiðið um fullar meðaltekjur iðnaðarmanna við ákvörðun örorkubóta þegar urn ungar stúlkur var að ræða, sbr. H 1992 37. I héraðsdómi í því máli var á því byggt að óheimilt væri með vísan til 3. og 4. gr. laga nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla að ákvarða tjónþola lægri örorkubætur fyrir þá sök eina að hún væri stúlka.5 Hæstiréttur hafnaði því með vísan til þess að skýrslur Kjara- rannsóknarnefndar sýndu að tekjur kvenna væru almennt lægri en karla og að leggja yrði til grundvallar eins og unnt væri atvik sem gagngert vörðuðu tjón- þola sjálfan og hefur þá verið átt við kyn tjónþolans þar sem um 8 ára stúlku var að ræða sem hafði enga sögu á vinnumarkaði.6 í áður nefndum hæstaréttardómi frá 20. febrúar 1997 tók Hæstiréttur upp nýja stefnu í málum sem þessum og byggði þá stefnubreytingu á tilvísun til 65. gr. stjórnarskrárinnar. I dóminum segir: Þótt útreikningar sýni, að meðaltekjur kvenna hafi almennt verið lægri en karla, getur það ekki ráðið úrslitum, þegar til framtíðar er litið. Mismunun um áætlun framtíðar- tekna, þegar engar skýrar vísbendingar liggja fyrir um tjónþola sjálfan, verður ekki réttlætt með skírskotun til meðaltalsreikninga, en í 65. gr. stjórnarskrárinnar er boðið, að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og konur og karlar njóta jafns réttar í hvívetna, sbr. 3. gr. stjórnskipunarlaga nr. 97/1995. Ber því að hafa óskertar meðaltekjur iðnaðarmanna til hliðsjónar, þegar framtíðartjón áfrýjanda er metið. Með dómi þessum hefur Hæstiréttur sýnt að hann er reiðubúinn að beita 65. gr. stjórnarskrárinnar en það þarfnast nánari skoðunar hverjar vísbendingar dómurinn felur nánar tiltekið í sér um gildissvið og inntak hennar. Sá háttur Hæstaréttar að dæma ungum stúlkum lægri örorkubætur en drengjum var ekki réttarregla í sjálfu sér heldur frekar afleiðing af beitingu 5 3. gr. laga nr. 28/1991 er svohljóðandi: „Hvers kyns mismunun eftir kynferði er óheimil. Þó teljast sérstakar tímabundnar aðgerðir, sem ætlaðar eru til að bæta stöðu kvenna til að koma á jafnrétti og jafnri stöðu kynjanna, ekki ganga gegn lögum þessum. Það telst ekki mismunun að taka sérstakt tillit til kvenna vegna þungunar eða bamsburðar“. I 4. gr. laga nr. 28/1991 segir meðal annars: „Konum og körlum skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf1. 6 Afstaða Hæstaréttar í málum sem þessum var víða gagnrýnd og má segja að sú gagnrýni kristallist í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu nr. E-1060/1992 Katrín Þórðardóttir gegn Vátryggingafélagi Islands hf. og Guðjóni Inga Ingasyni, sem kveðinn var upp 19. apríl 1994. I dóminum sagði: „Sú aðferð tryggingafræðinga að ætla stúlkum 75% af tekjuin pilta kann að styðjast við samanburð á tekjum karla og kvenna á undanförnum árum. Sá mismunur verður ekki útskýrður með öðru en kynferði og ekki með mislöngum vinnutíma. Samkvæmt 1. gr. laga 28/1991,... er markmið jafnréttislaga að koma ájafnrétti og jafnri stöðu kvenna og karla á öllum sviðum. Aðurnefnd aðferð virðist fela í sér óleyfilega ráðagerð um að ákvæði jafnréttislaga muni ekki ná tilgangi sínum, hvorki í bráð né lengd. Ekki verður talið líklegra að framtíðartekjur stefnanda verði 75% af meðaltekjum launþega en jafn háar þeim“. 96
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.