Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Side 42

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Side 42
reglna hefur svo aftur verið talið að svigrúm dómstóla sé meira til að víkja frá fordæmum sem eru réttarheimildir fyrir réttarreglum en öðrum réttarheimildum svo sem settum lögum eða réttarvenju.8 Því verður að álykta að líklegast sé að Hæstiréttur muni reynast tregari til þess að víkja lögum eða réttarreglu sem byggir á öðrum réttarheimildum til hliðar á gundvelli 65. gr. stjórnarskrárinnar en að byggja á henni með þeim hætti sem hér hefur verið lýst. Samkvæmt því verður ekki talið að dómurinn sýni að á grundvelli 65. gr. stjórnarskrárinnar muni Hæstiréttur ekki hika við að víkja réttarreglu til hliðar. Þá verður ekkert ráðið af dóminum um það hvort og ef svo er að hvaða leyti 65. gr. stjómar- skrárinnar verður beitt um meðferð framkvæmdavaldsins. Hin nýja stefna Hæstaréttar virðist eins og áður sagði sýna ráðagerð réttarins um það að 65. gr. stjórnarskrárinnar muni ná tilgangi sínum í framtíðinni. Mikilvæg almenn ályktun sem dregin verður af dómi Hæstaréttar frá 20. febrúar 1997 í málinu Guðrún Eiríksdóttir gegn íslenska ríkinu er því að mati höfundar þessarar greinar sú að í honum felist vísbending um það að Hæstiréttur muni leggja sitt af mörkum í því skyni að 65. gr. stjórnarskrárinnar nái tilgangi sínum í framtíðinni. 3. NOKKUR ORÐ UM SÉRREGLU 65. GR. STJÓRNARSKRÁRINNAR UM JAFNRÉTTI KYNJANNA OG JÁKVÆÐAR SKYLDUR RÍKIS- VALDSINS Dómur Hæstaréttar frá 20. febrúar í málinu Guðrún Eiríksdóttir gegn íslenska ríkinu varðar jafrétti kynjanna en regla 65. gr. stjórnarskrárinnar felur í sér annars vegar sérreglu um jafnrétti kynjanna en hins vegar almenna jafnræðis- reglu. Sérreglan um jafnrétti kynjanna var ekki í upphaflega frumvarpinu til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskránni heldur hljóðaði sú regla sem þar var lögð til einfaldlega þannig: Allir skulu vera jafnir fyrir lögum án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.9 Reglunni um að konur og karlar skuli njóta jafns réttar í hvívetna var bætt inn af stjómarskrámefnd eftir fyrstu umræðu um fmmvarpið til að koma til móts við ábendingar um að sérstakt ákvæði um jafnrétti kynjanna vantaði í fmm- 8 Ármann Snævarr telur að dómstólarnir hafi meira svigrúm til að endurskoða fordæmi, meta hallkvæmni þeirra og hafna þeim eftir atvikum en vera myndi t.d. um sett lög. Sjá Ármann Snævarr: Almenn lögfræði, Reykjavík 1988, bls. 221. 9 Greinargerð, bls. 1 98

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.