Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Page 59

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Page 59
ingarregla og að skýra eða efnislega jafnræðisreglu vanti í frumvarpið.59 í engri þessara umsagna er skýrt á hvaða grundvelli þessi túlkun á jafnræðisreglunni er byggð og verður því ekki fjallað nánar um þær hér heldur aðeins vísað til þess sem að framan er rakið. í umsögn Mannréttindaskrifstofu Islands kemur fram að skrifstofan telji það skref í rétta átt að innleiða jafnræðisreglu í stjórnarskrána. Hinsvegar eru áhyggjur látnar í ljós þess efnis að sú jafnræðisregla sem lögð sé til muni aðeins veita takmarkaða vernd gegn mismunun. Sérstaklega er þess getið að reglan veiti ekki jafna lagavernd og leggi ekki jákvæðar skyldur á ríkið til að tryggja jafnræði. Loks er bent á það að utan sviðs laga sem þegar hafi verið sett hafi reglan litla þýðingu.60 Ekki verður skilið af umsögn mannréttindaskrifstofunnar að hún telji alls ekkert efnislegt innihald felast í hinni almennu jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar heldur aðeins að hún telji það takmarkað um of. Allar þær umsagnir sem greint hefur verið frá hafa þann tilgang að sækjast eftir skýrari, betri og víðtækari jafnræðisreglu. Eðli sínu samkvæmt leggja þær því sérstaka áherslu á það að regla frumvarpsins sé ófullkomin og hafi óvissa þýðingu. Hinsvegar voru aðrar umsagnir lagðar fyrir stjórnarskrárnefnd þar sem lýst var ánægju með regluna eða ekki gerðar athugasemdir við hana að því leyti sem efni þessa kafla varðar.61 Tilraunir þeirra sem vildu breytingar á hinni almennu jafnræðisreglu frum- varpsins reyndust ekki takast að því er varðar þau atriði sem fjallað er um í 59 Þetta eru eftirtaldar umsagnir: Rauði Kross íslands: Athugasemdir við frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjómarskrá íslands, nr. 33/1944, dagsett f Reykjavík 31. janúar 1995, óútgefnar, fáanlegar hjá nefndadeiid Alþingis, bls. 12; Barnaheill: Athugasemdir við frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá íslands nr. 33/1944, dagsettar í Reykjavík 23. janúar 1995, óútgefnar, fáanlegar hjá nefndadeild Alþingis, bls. 3 og Samtökin 78: Bréf til Stjórnarskrámefndar Alþingis, dagsett í Reykjavík 19. janúar 1995, óútgefið, fáanlegt hjá nefndadeild Alþingis. 60 Mannréttindaskrifstofa íslands: Umsögn Mannréttindaskrifstofu íslands um endurskoðun mannréttindakafla stjórnarskrárinnar, dagsett í Reykjavík 2. febrúar 1995, óútgefm, fáanleg hjá nefndadeild Alþingis, bls. 17. 61 í þessum umsögnum er lýst ánægju með regluna: Hjálparstofnun kirkjunnar: Bréf til Stjórnarskrámefndar, dagsett í Reykjavík 31. janúar 1995, óútgefið, fáanlegt hjá nefndadeild Alþingis, bls. 1; Bandalag háskólamanna-BHMR: Umsögn um fmmvarp til stjórnskipunar- laga, dagsett í Reykjavík 23. janúar 1995, óútgefin, fáanleg hjá nefndadeild Alþingis, bls. 1 og Verslunarráð íslands: Bréf til Stjórnarskrárnefndar Alþingis, dagsett í Reykjavík 26. janúar 1995, óútgefið, fáanlegt hjá nefndadeild Alþingis, bls. 1. Eina gagnrýnin í umsögn íslands- deildar Amnesty International varðaði upptalingu þeirra atriða sem óheimilt væri að byggja mismunun á, sjá Amnesty International, íslandsdeild: Umsögn íslandsdeildar Amnesty International um frumvarp til stjórnskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Islands, nr. 33/1944, með síðari breytingum, dagsett í janúar 1995, óútgefin, fáanleg hjá nefndadeild Alþingis, bls. 6. 115

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.