Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Side 69

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Side 69
6. ERLENDIR GESTIR Frú Mary Robinson, forseti írlands, heimsótti lagadeild 29. maí 1996 í opinberri heimsókn sinni til Islands. Viðstaddir voru kennarar og starfsfólk lagadeildar, auk 30 laganema. Valdis Birkavs, utanríkisráðherra Lettlands, heimsótti lagadeild 14. október 1996, þegar hann var staddur hér á landi í opinberri heimsókn. 7. STÖÐUBREYTINGAR Eftirfarandi breytingar hafa orðið á stöðum innan lagadeildar: Ragnheiður Bragadóttir dósent frá 1. ágúst 1995; Davíð Þór Björgvinsson dósent frá 1. mars 1996, prófessor frá 1. apríl 1996; Viðar Már Matthíasson prófessor frá 1. ágúst 1996; Páll Hreinsson, aðstoðarmaður umboðsmanns Alþingis, aðjúnkt til tveggja ára, frá 1. október 1996 að telja. 8. STJÓRN ORATORS, FÉLAGS LAGANEMA, STARFSÁRIÐ 1995- 1996 Á aðalfundi Orators, sem haldinn var í október 1995, var Sigurður Kári Kristjánsson kjörinn formaður stjórnar félagsins. Aðrir í stjórn voru kjörin Stefán Árni Auðólfsson, varaformaður; Sigþór Guðmundsson, ritstjóri Úlfljóts; Erna Hjaltested, skemmtanastjóri; Eva Margrét Ævarsdóttir, alþjóðaritari; Jón Finnbogason, gjaldkeri og Reimar Snæfells Pétursson, funda- og menningar- málastjóri. 9. FORSETASKIPTI Björn Þ. Guðmundsson, prófessor, var kjörinn deildarforseti til tveggja ára frá 5. september 1996, og tók hann við því embætti af Þorgeiri Örlygssyni, prófessor. Jónatan Þórmundsson, prófessor, var kjörinn varadeildarforseti til sama tíma. Björn Þ. Guðmundsson SKÝRSLA UM LAGASTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS 27. FEBRÚAR 1996 - 28. FEBRÚAR 1997 1. STARFSLIÐ Þessir kennarar voru í fullu starfi við Lagastofnun 1996-1997: Björn Þ. Guðmundsson, Davíð Þór Björgvinsson, Eiríkur Tómasson, Gunnar G. Schram, Jónatan Þórmundsson, Páll Sigurðsson, Ragnheiður Bragadóttir, Sigurður Líndal, Stefán Már Stefánsson, Viðar Már Matthíasson og Þorgeir Örlygsson. 125

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.