Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Blaðsíða 8

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Blaðsíða 8
Tafla 1. Fjöldi og tegundir mála hjá RLR 1988-1996 Tegundir afbrota 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 Innbrot 1.298 1.575 1.575 1.468 1.837 1.873 2.208 2.415 2.236 Þjófnaðir 1.198 1.553 1.418 1.219 1.337 1.423 1.479 1.456 2.3544 Önnur auðgunarbrot — 3.165 2.569 2.412 3.420 2.382 1.240 1.258 424 Nauðgun 31 18 15 17 17 25 26 19 20 Tilraun til nauðgunar — 2 6 3 4 3 10 6 — Önnur kynferðisbrot 66 59 62 71 65 69 83 84 55 Manndráp 6 0 1 3 2 1 0 0 0 Tilraun til manndráps — 2 0 2 5 1 0 1 1 Annað ofbeldi 133 125 101 98 90 91 90 93 105 Lítum á ofbeldismál sem hafa verið talsvert áberandi í opinberri umræðu. Samkvæmt gögnum RLR hefur fjöldi líkamsárása og líkamsmeiðinga verið tiltölulega stöðugur á síðustu árum eða jafnvel minnkað og hefur enn ekki náð því hámarki sem varð undir lok síðasta áratugar. Sama má raunar segja um kynferðisbrot. Og jafnvel þó við höfum upplifað tvö manndrápsmál á höfuð- borgarsvæðinu á síðasta ári (1997) hefur fjöldi slíkra mála hjá RLR samt að jafnaði verið minni á þessum áratug en þeim síðasta. Einnig er athyglisvert í þessu samhengi að skoða fjölda þeirra sem leitað hafa til slysadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur vegna ofbeldis sem þeir hafa verið beittir.5 Fram kemur að hlutfall þeirra jókst ekki svo marktækt geti talist á tímabilinu 1975 til 1995 ef tillit er tekið til íbúafjölda í Reykjavík. Þetta hlýtur að koma talsvert á óvart miðað við hvað ýmsar samfélagsforsendur breyttust á þessu tímabili. Nægir að nefna hér t.d. tilkomu frjálsra fjölmiðla með auknu ofbeldisefni og vaxandi innreið fíkniefna sem fáeina þætti sem taldir hafa verið ofbeldishvetj andi. Samanlagt sýna gögn RLR að óneitanlega hafa orðið einhverjar hræringar í þróun afbrota á síðustu árum á höfuðborgarsvæðinu. En þó fjölmiðlar færi okkur sífellt fréttir af margvíslegum óhæfuverkum sem setja skiljanlega ugg að okkur og að tilfinning margra sé að afbrot séu bæði snöggtum tíðari og alvarlegri en áður, bendir í raun fátt til þess að fjöldi afbrota hafi farið verulega úr böndum á síðustu árum. Og enn eru alvarleg afbrot á Islandi hlutfallslega fátíðari en í flestum öðrum vestrænum ríkjum. Taflan hér fyrir neðan, sem byggð er á gögnum frá Lögreglunni í Reykjavík og ársskýrslu Interpol yfir tiltekin afbrot í höfuðborgum Norðurlandanna árið 1993 miðað við 100 þúsund íbúa, staðfestir þetta:6 4 Þessi tala er fjöldi brota en ekki mála eins og árin á undan. Brot eru yfirleitt talsvert fleiri en mál en hvert einstakt mál felur iðulega í sér fjölda brota. 5 Skýrsla um útbreiðslu ffkniefna og þróun ofbeldis. Forsætisráðuneytið, apríl 1996. 6 Sjá tilvísun 5 hér að framan. 92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.