Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Blaðsíða 57

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Blaðsíða 57
3.3 Grundvallarreglur EES-samningsins Eina af grundvallarreglum EES-samningsins er að finna í 3. gr. en þar er kveðið á um skyldu aðildarríkjanna til að sýna samstarfinu hollustu. Segir þar að samningsaðilar skuli gera allar viðeigandi almennar eða sérstakar ráðstafanir til að tryggja að staðið verði við þær skuldbindingar sem af samningnum leiða. Þeir skuli varast ráðstafanir sem teflt geta því í tvísýnu að markmiðum samningsins verði náð. Og að þeir skuli ennfremur auðvelda samvinnu innan ramma samningsins. Akvæðið á sér fyrirmynd í 5. gr. Rómarsáttmálans sem skýrð hefur verið á þann veg að hún taki til allra þátta ríkisvaldsins, þ. á m. dómstóla.47 Þá skal þess getið að EES og SED samningarnir bera áþreifanleg merki þeirrar ríku áherslu sem samningsaðilar leggja á að einsleitni á Evrópska efna- hagssvæðinu verði náð og viðhaldið.48 Einsleitni er ætlað að tryggja sömu réttarstöðu einstaklinga á öllu efnahagssvæðinu.49 Að ógleymdri þeirri stað- reynd að mörg ákvæði EES-samningsins eru efnislega samhljóða ákvæðum Rómarsáttmálans ber að líta til þess sem segir í fjórða og fimmtánda lið inngangsorða EES-samningsins, 1. gr., 6. gr., 105.-107. gr. hans og 3. gr. og 34. gr. SED-samningsins svo dæmi séu tekin. Samkvæmt fjórða lið inngangsorða EES-samningsins hafa samningsaðilar í huga „það markmið að mynda öflugt og einsleitt Evrópskt efnahagssvæði er grundvallist á sameiginlegum reglum og sömu samkeppnisskilyrðum, tryggri framkvæmd, meðal annars fyrir dómstólum, og jafnrétti, gagnkvæmni og heildarjafnvægi hagsbóta, réttinda og skyldna samningsaðila“. Jafnframt stefna samningsaðilar samkvæmt fimmtánda lið að því „með fullri virðingu fyrir sjálf- stæði dómstólanna, að ná fram og halda sig við samræmda túlkun og beitingu [samningsins] og þeirra ákvæða í löggjöf bandalagsins sem tekin eru efnislega upp í [samninginn], svo og að koma sér saman um jafnræði gagnvart ein- staklingum og aðilum í atvinnurekstri að því er varðar fjórþætta frelsið og samkeppnisskilyrði“. Efni 1. gr. EES-samningsins hefur áður verið getið en þar segir að markmið hans sé að stuðla að stöðugri og jafnri eflingu viðskipta- og efnahagstengsla 47 Sjá t.d. mál 80/86 Kolpinghuis Nijmegen [1987] ECR 3969. Dæmt var, með vísan til 5. gr. Rómarsáttmálans, að dómstólum aðildarríkjanna væri skylt að túlka réttarreglur landsréttar með hliðsjón af orðalagi og tilgangi tilskipana. Almenna umfjöllun um 5. gr. Rómarsáttmálans má m.a. finna hjá P.J.G. Kapteyn og P. Verloren van Themaat: Introduction to the law of the European Communities (önnur útgáfa), bls. 86-91. Deventer, 1989. Þess er hér að geta að dómstólar í aðildarríkjum EES-samningsins (EFTA-megin) eru ekki bundnir við dóma Evrópudómstólsins og EFTA-dómstólsins með sama hætti. 48 Marise Cremona bendir á ýmislegt sem kann að standa því í vegi að einsleitni verði náð: „The „Dynamic and Homogeneous" EEA: Byzantine Structures and Variable Geometry". (1994) 19 E.L.Rev., bls. 508-526. 49 Sjá Stefán Má Stefánsson: The EEA Agreement and its Adoption into Icelandic Law. IUSEF, number 25. Centre for European Law. University of Oslo. Universitetsforlaget. Oslo 1997, (Stefán Már Stefánsson) bls. 27-32. 141
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.