Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Síða 27

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Síða 27
löggerningi, á að efna með eignfærslu á reikning kröfuhafa, t.d. í Þýskalandi, skuli greiðast að vali skuldara í evró (þótt samningsgjaldmiðill sé þýskt mark (DEM)) eða í þýskum mörkum (DEM) (þótt samningsgjaldmiðill sé evró).35 Hugmyndin er, að (eingöngu) lánastofnun kröfuhafa sjái um umreikninginn. Beita skal hinu fastákveðna reiknigengi. Akvæðinu er ekki aðeins ætlað að taka til færslu inneignar, svo sem millifærslu milli reikninga, en einnig til skuld- færslu, s.s. færslu tékka af reikningi skuldara á reikning kröfuhafa, og ekki er skilyrði að reikningur skuldara (í dæminu) sé í Þýskalandi, sbr. þrettándu forsendu reglugerðardraganna. Önnur mikilvæg undantekning kemur fram í 8. gr. (4). í þessu efni mun löggjöf aðildamkja mæla fyrir um frekari reglur. I sjöttu forsendu reglugerðardraganna segir að lagaákvæði skuli túlka með tilliti til þess að ekki sé gengisáhætta milli evrós og gjaldmiðla þátttökuríkja, eða milli gjaldmiðla þátttökuríkjanna innbyrðis. I þessu felst að þar sem á það reynir skal miða við að um sé að ræða fast gengissamband milli þessara gjald- miðla, án nokkurrar fjárhagsáhættu. í 14. gr. reglugerðardraganna er mælt skýrt fyrir um að við lok aðlögunar- tímans skuli túlka tilvísanir löggerninga til gjaldmiðils ríkis sem tilvísanir til evrósins, samkvæmt hinu fasta reiknigengi. Efndir samnings í t.d. þýskum mörkum, skulu þannig fara fram í evró.37 Það er því ekki nauðsynlegt að gefa út nýja skuldaryfirlýsingu, þótt slíkt geti verið hagkvæmt ef um langvarandi skuldbindingar er að ræða.38 11. AÐ AÐLÖGUNARTÍMANUM LOKNUM Eigi síðar en 1. janúar 2002 skal setja í umferð peningaseðla sem eru útgefnir í evró og annars konar mynt (smápeninga) í evró eða sentum (cent).39 Sam- kvæmt 10. gr. reglugerðardraganna setur Evrópski Seðlabankinn seðlana í umferð svo og seðlabankar þeirra ríkja sem taka þátt í myntsamstarfinu. Frá sama tíma að telja skulu aðildarríkin samkvæmt 11. gr. reglugerðardraganna setja evrópumyntina (smápeninga) í umferð. Þessi munur á útgáfurétti á mismunandi tegundum lögeyris byggist á þeirri sögulegu staðreynd að sam- kvæmt gull eða silfurstöðlum var einungis gull eða silfurmynt flokkuð undir 35 Valmöguleikar skuldara eru í þessu samhengi háðir því að fjármálastofnun sú er skuldari skiptir við bjóði síka þjónustu. 36 Umreikningur verður að fara fram í þeim tilvikum að skuldari velji að greiða með þýskum mörkum, þegar reikningur kröfuhafa er í evró (eða öfugt), sbr. Euro Papers „Legal Framework for the use of the euro“, bls. 5. 37 Það ræðst af þýskum peningakröfurétti (n. pengekravsrett) að hve miklu leyti greiðsla má fara fram með peningaseðlum f þýskum gjaldmiðli, meðan sá gjaldmiðill er enn lögeyrir í Þýskalandi, svo sem vera kynni í tiltekinn tíma eftir lok aðlögunartímans. 38 Sbr. Euro Papers. „Legal Framework for the use of the euro“, bls. 7. 39 Formleg ákvörðun um nákvæmar dagsetningar mun verða tekin um leið og reglugerðardrögin verða samþykkt. Svo virðist sem stjómmálaleg samstaða sé um að ekki verði vikið frá dagsetning- unni 1. janúar 2002. 111
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.