Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Blaðsíða 20
miðli ríkis og evró á aðlögunartímanum) og um umreiknings- og innlausnar-
gjöld. Þá er frekari lagasetning möguleg að því er lýtur að reglum um peninga-
fölsun o.fl. Loks geta komið upp önnur atriði, sem nauðsynlegt er að setja
fyrirmæli um.
4. SKILGREININGAR
Reglugerðirnar geyma nokkur mikilvæg hugtök, sem skilgreind eru í upphafi
og eru það lögbundnar skilgreiningar.
Peningaeiningar ríkja vísa til peningaeininga þeirra aðildarríkja sem taka
þátt án undanþágu í þriðja áfanga EMU (til þeirra er jafnan vísað sem „þátt-
tökuríkja“). Peningaeiningin er ákveðin í samræmi við peningarétt aðildarríkis
daginn áður en þriðji áfangi hefst.
Aðlögunartíminn táknar tímabilið 1. janúar 1999 til 31. desember 2001.
Gengissambandið milli gjaldmiðla þátttökuríkjanna og evrósins verður endan-
lega fastsett frá upphafi aðlögunartímans og gengi hvers ríkis verður birtingar-
mynd evrósins. Sameiginleg peningastefna, sem byggir á evróinu, verður til,
þar sem evróið verður notað í peningaviðskiptum. A aðlögunartímanum munu
þó aðeins peningaseðlar og mynt einstakra ríkja vera í dreifingu sem lögeyrir.
Hugtakið lagaákvæði/löggerningar (n. rettslige instrumenter)13 er mikil-
vægt hugtak og tekur yfir löggjöf og aðrar reglur, m.a. stjórnsýslufyrirmæli,
niðurstöður dómstóla, samninga,14 einhliða yfirlýsingar, greiðslueyri (annan en
peningaseðla og mynt) og aðrar þær ákvarðanir og yfirlýsingar sem hafa réttar-
áhrif.
í 109. gr. L (4) Rs. (123 (4) gr. Rs.) segir m.a. að „[Ráðið skuli] ákveða
reiknigengi fyrir gjaldmiðla [þátttökuríkjanna] sem skuli vera fastsett og
óafturkallanlegt, svo og með hvaða óafturkallanlega fastsetta gengi ECU skuli
koma í stað þessara gjaldmiðla og vera sjálfstæður gjaldmiðill“. Reiknigengi (n.
omregningskurs) er það hugtak sem notað er í reglugerðinni um hið óafturkall-
anlega fastsetta gengi milli evrósins og gjaldmiðils þátttökuríkis. Reiknigengið
verður ákveðið í sambandi við framkvæmd þriðja áfanga.
Endurviðmiðun15 er hugtakið yfir þá aðstöðu að fjárhæð sem gefur til
kynna útistandandi skuld í peningaeiningu ríkis verður breytt í evróeiningu á
reiknigengi. Endurviðmiðunin á ekki að breyta öðrum skilyrðum í sambandi
við skuldina. I hinni lögbundnu skilgreiningu (1. gr.) er talað um endur-
ákvörðun í sambandi við skuldir.16 Tilgreining annarra fjárhæða en tilgreining
13 Hugtökin eru á dönsku „retslige instrumenter", á sænsku „rattsliga instrument“, á ensku „legal
instruments", á þýsku „Rechtsinstrumente" og á frönsku „instruments juridiques".
14 í níundu forsendu aðfararorða reglugerðarinnar er tekið fram að hugtakið „samningur" taki til
allra samningsgerða, án tillits til þess hvernig til samningsins er stofnað.
15 Hugtökin eru á dönsku „redenominere", á sænksu „att ándra valutaenhet", á ensku „rede-
nominate", á þýsku „umstellen" og á frönsku „relibeller".
16 Sbr. „...changing the unit in which the amount of outstanding debt is stated...“ (auðkennt hér).
104